fimmtudagur, 25. október 2007

mánudagur, 22. október 2007

Lítið skref fyrir lyklaborðið - stórt skref fyrir bloggheiminn

Viti menn ég er byrjaður að blogga, átti aldrei von á því. Hef alltaf litið á bloggskrif tómum augum, rita niður eitthvert þvaður skella því um sporbaug alnetsins og vonast til þess að bloggheimur lesi og tjái sinn bloggisma. Samt sem áður les ég önnur blogg...þegar ég á að vera gera eitthvað allt annað...t.d. að skúra! Vonandi verður þetta blogg til þess að fækka leiðinlegum verkum í samfélaginu. Sakna þjóðarsálarinnar sem hékk í viðtækinu þegar ég var lítill - einfaldara að hlusta á tuð en að lesa tuð.

En nú er mál að gerast stórtækur bloggverji þar sem klakinn verður yfirgefinn 8. nóvember 2007 og haldið í víking og jóga til Indlands og því eina rétta í stöðunni að halda úti opinberri dagbók fyrir vini, vandamen og almenna bloggverja. Þá er bara að krossleggja fingur, ákalla Allha og vona að einhver nenni að lesa um ævintýri litlu fjölskyldunnar í þriðja heiminum - fyrsta bindi. - Góðar stundir.

Namaste!

Konni