mánudagur, 31. mars 2008

Vinnan kallar


Þá er fríið búið og fyrsti vinnudagurinn var í dag. Það hefur bæst eitthvað við af starfsfólki því röðin var orðin all löng í matsalnum. Ég sendi ykkur þessa mynd heima í Calidris bara til að minna ykkur á hvað þið hafið það gott hjá honum Mumma. Það er engin tilviljun að Mummi hljómar svipað og Mamma.

mánudagur, 24. mars 2008

Nýjar ljósmyndir úr Keralaferðinni

Nýkomin úr ferðalagi frá Kerala með tengdó, frábær afslöppun í hitabeltislandslagi. Fengum líka kærkomna hvíld frá sólinni.

Ljósmyndirnar eru á nýju ljósmyndasíðunni okkar:
http://web.mac.com/konniogella/

miðvikudagur, 12. mars 2008

Tempo Traveller

Indverjar eru yndislegir á marga kanta og það er gaman að fylgjast með þróun sem er að eiga sér stað en er nokkrum árum á eftir vesturlöndum. Við höfum áður sagt ykkur frá bílaævintýrum á Góu þegar kemur að bílbeltum. Ég var að panta bíl í Kerala og bað ferðaskrifstofuna að sjá til þess að það væru bílsæti í bílnum. Ég var að fá þetta dásamlega svar:

"Hi Elin,
We are sure you will be comfortable in the Tempo Traveller even though they do not have seat belts (None of them).
Do not hesitate to contact us, in case you have further clarifications..
Regards,
Indu"

þriðjudagur, 11. mars 2008

Mikael Tumi á kærustu

Já það eru fleiri en ég sem eru að eignast vini hér í Hyderabad. Minn er reyndar tennisvinur og ekkert annað.
Barnfóstran hans Mikaels, hún Mamatha tilkynnti mér í dag að hann ætti "girlfriend" sem er ekkert annað en kærasta á góðri íslensku. Minn maður ekki lengi að byrja á þessum pakka....húúhaa!
Kærasta Mikaels Tuma heitir Anika og býr í húsi númer 8. Þau hittast yfirleitt seinni partinn á leikvellinum undir eftirliti indverskra húsmæðra og barnfóstra. Já hann náði sér í eina eldri, Anika er nefnilega tveggja ára og Mikael er næstum eins og hálfs árs.
Anika er góð kærasta, hún faðmar Mikael ótt og títt, honum til mikillar armæðu. Gefur honum kexkökur af hreinni góðsemi sem hann þiggur ekki og lánar honum hjólið sitt sem hann vill víst ekkert prófa.... jú einu sinni lét hann til leiðast. Hún Anika blessunin er greinilega að reyna allt til þess að sjarma Mikael sem lætur bara ganga á eftir sér. Nú bíðum við, mamma og pabbi, spennt eftir því að Mikael kynni okkur fyrir þessari dömu...ég get strax byrjað að sína henni myndbandsupptökur af Mikael Tuma í baði.

Pabba Konni

föstudagur, 7. mars 2008

Það á að gefa hlutunum séns

Ég fór á Taj Deccan seinnipartinn til þess að láta framkalla mig (lita augnhárin og augnbrúnir) en þar er smá snyrtistofa. Konni fór þar í klippingu um daginn og heppnaðist alveg ágætlega (hann fór í karlaherbergið, ég fór í konuherbergið).
Þegar ég settist í stólinn þá ákvað ég að vera hugrökk og biðja um klippingu líka. Maður á að gefa hlutunum séns. Þetta var mín fyrsta klipping á Indlandi og ég var pínu stressuð verð é að segja.
Klipparinn var lágvaxinn indverji á svipuðum aldri og ég. Ég útskýrði fyrir honum hvað ég vildi gera, jú aðeins að fá styttur í hárið að aftan og mýkja toppinn.
Þá þvoði hann á mér hárið, eiginlega skrúbbaði sem var bara nokkuð kósí.
Þegar ég var sest í stólinn þá tók ég upp blað og byrjaði að fletta en neinei...
"This is how we will do this madam, you do not read magazine while I am cutting"
ég: "óh ofcourse not"
klipparinn: "You have to follow me and look directly into the mirror"
ég: "ah yes ofcourse, to keep the head straight"
(ég legg frá mér blaðið og kem mér vel fyrir, krosslegg fætur, brosandi út í annað)
klipparinn: "No crossing legs"
ég: "oh? ok, sorry" (brosi enn meira, reyni að halda andlitinu)
klipparinn: "yes, crossing legs can make your head not straight" "you have a nice smile madam"
ég: "yea ofcourse" (vil ekki gera neitt til að trufla einbeitinguna, þetta var mikið alvörumál"
(Klipparinn útskýrir fyrir mér hvað hann ætlar að gera nákvæmlega og ég samþykki aðgerðina)
Eins og áður kom fram þá var ég svolítið stressuð, sérlega þegar hann byrjaði að klippa og handbrögðin voru ekki alveg eins og á Tony and Guy heima á Laugarveginum. Ég sætti mig við það sma saman að þetta verði kannski ekkert spes, en það er nú svo merkilegt með það að hárið vex aftur og aftur. Hver svosem sér mig á Indlandi? Ég hafði helst áhyggjur af myndunum... þær skrásetja þetta allt.
Allavega.. hann klárar klippinguna og snýr sér að augnbrúnunum. Hann réttir mér litaspjald og spyr hvort ég vilji fá sama lit og á hárinu.......
Nú bara gat ég ekki verið kurteis lengur og missti út hláturinn. Hann verður pínu vandræðalegur greyjið skiljanlega. Ég panta kurteisislega ljósbrúnan lit. Nota bene, þetta voru litir til að lita hárið, ekki svona eins og heima sér augnháralitir. Ekki furða að þeim fanst of áhættusamt að lita augnhárin.
Hann skellir litnum á. Það var svolítið krúttlegt að hafa mann í þessu, heima ráða dömurnar þessum bransa.
Svo blæs hann hárið, leggur frá sér hárblásarann, tekur þrjú skref afturábak og krossleggur hendur:
"this is like að graduation haircut"
Minn maður svakalega ánægður með afraksturinn. Ég gat ekki annað en að hrósa honum í bak og fyrir.
Guð sé lof fyrir leir, vax og hársprey.

Tennisvinurinn minn

Já ég á sko nýja vin, við kynntumst í tennis. Hann Atul er vænsta skinn og fínt að spila við hann tennis. Eftir fyrsta leik okkur spurði hann: "Do you carry e-mail ID?"„....Que??? já e-mail addressl“ hváði ég! Nú er ég með símann hans, e-mail og auðvitað business kortið. En ágangur hans fer að jaðra við áreiti...veit ekki hvort ég er tilbúinn í samband, við þekkjumst varla.

En engu að síður þá á ég nýjan tennisvin í Hyderabad sem er meira en Ella getur sagt. Ég er líka að verða skuggalegur góður í tennis. Farinn að smassa uppgjafir og keppa við kennarana. Þessi á milli sem ég spila tennis þá horfi ég á Bangalore Open: Women Tennis. Klassa sjónvarpsefni sem á eftir að gera mig að Pete Sampras 21. aldarinnar.

Konni

Konni á vin - tennisvin

Það er svo gott að hann Konni sé búin að eignast vin í Hyderabad. Hann er tennisvinur okkar, samt meira Konna. Við vorum í tennis í gær og hann Atul (tennisvinurinn) spilaði við mig mest allan tímann en spilaði við Konna í 5 mínútur í lokinn. Þegar tímanu var lokið tók hann í hendina á Konna og þakkaði honum fyrir, það væri gaman að spila við hann. ...og hvað með mig?
Svo spurði hann hvort hann vildi spila við sig um helgina, og ég mætti koma með. Vá! ég má koma með! Þeir sem þekkja mig vita að þetta þarf bara til þess að ég komi aldrei með. Ég er sko ekkert hjálpardekk takk!
Annars átti ég all nokkur góð skor á hann. Ég held að hann sé bara feiminn við mig.
Hann fékk símanúmerið hjá Konna, sendi honum svo SMS, hringdi, sendi email með símanúmerinu og lét hann fá business kort svo hann fengi það pottþétt.
Annars er hann svaka fínn hann Atul, það er gott að spila við hann Tennis og hann er búin að koma með fullt af góðum vísbendingum um Keralaferðina okkar sem við erum að skipuleggja.
En það er gott að Konni á vin - tennisvin.
Ella

mánudagur, 3. mars 2008

Bharats Sports Comany



Þær eru ekki glæsilegar allar búðirnar í Hyderabad en þar er hægt að finna ýmislegt. Ég dró Konna og Mikael með mér í Abids sem er eitt verslunarhverfið af gömlu gerðinni til þess að finna mér boxpúða. Ég fann hann í Bharats Sports Copany, svakalega fínn leður-professional boxpúði frá Jason. Jason er víst ekkert prump merki, þetta er alvöru merki, þeir til dæmis framleiða rúlluskauta líka samkvæmt afgreiðslumanninum.
Fyrir neðan Bharats er önnur búð og þar fann ég ótrúlegt en satt, kumitehanska. Svo nú getur mín farið að hamast, það er bara spurning hvort viftan þoli þungann af púðanum (já og spörkunum;).