Ég fór á Taj Deccan seinnipartinn til þess að láta framkalla mig (lita augnhárin og augnbrúnir) en þar er smá snyrtistofa. Konni fór þar í klippingu um daginn og heppnaðist alveg ágætlega (hann fór í karlaherbergið, ég fór í konuherbergið).
Þegar ég settist í stólinn þá ákvað ég að vera hugrökk og biðja um klippingu líka. Maður á að gefa hlutunum séns. Þetta var mín fyrsta klipping á Indlandi og ég var pínu stressuð verð é að segja.
Klipparinn var lágvaxinn indverji á svipuðum aldri og ég. Ég útskýrði fyrir honum hvað ég vildi gera, jú aðeins að fá styttur í hárið að aftan og mýkja toppinn.
Þá þvoði hann á mér hárið, eiginlega skrúbbaði sem var bara nokkuð kósí.
Þegar ég var sest í stólinn þá tók ég upp blað og byrjaði að fletta en neinei...
"This is how we will do this madam, you do not read magazine while I am cutting"
ég: "óh ofcourse not"
klipparinn: "You have to follow me and look directly into the mirror"
ég: "ah yes ofcourse, to keep the head straight"
(ég legg frá mér blaðið og kem mér vel fyrir, krosslegg fætur, brosandi út í annað)
klipparinn: "No crossing legs"
ég: "oh? ok, sorry" (brosi enn meira, reyni að halda andlitinu)
klipparinn: "yes, crossing legs can make your head not straight" "you have a nice smile madam"
ég: "yea ofcourse" (vil ekki gera neitt til að trufla einbeitinguna, þetta var mikið alvörumál"
(Klipparinn útskýrir fyrir mér hvað hann ætlar að gera nákvæmlega og ég samþykki aðgerðina)
Eins og áður kom fram þá var ég svolítið stressuð, sérlega þegar hann byrjaði að klippa og handbrögðin voru ekki alveg eins og á Tony and Guy heima á Laugarveginum. Ég sætti mig við það sma saman að þetta verði kannski ekkert spes, en það er nú svo merkilegt með það að hárið vex aftur og aftur. Hver svosem sér mig á Indlandi? Ég hafði helst áhyggjur af myndunum... þær skrásetja þetta allt.
Allavega.. hann klárar klippinguna og snýr sér að augnbrúnunum. Hann réttir mér litaspjald og spyr hvort ég vilji fá sama lit og á hárinu.......
Nú bara gat ég ekki verið kurteis lengur og missti út hláturinn. Hann verður pínu vandræðalegur greyjið skiljanlega. Ég panta kurteisislega ljósbrúnan lit. Nota bene, þetta voru litir til að lita hárið, ekki svona eins og heima sér augnháralitir. Ekki furða að þeim fanst of áhættusamt að lita augnhárin.
Hann skellir litnum á. Það var svolítið krúttlegt að hafa mann í þessu, heima ráða dömurnar þessum bransa.
Svo blæs hann hárið, leggur frá sér hárblásarann, tekur þrjú skref afturábak og krossleggur hendur:
"this is like að graduation haircut"
Minn maður svakalega ánægður með afraksturinn. Ég gat ekki annað en að hrósa honum í bak og fyrir.
Guð sé lof fyrir leir, vax og hársprey.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Stórskemmtileg lesning frá hárgreiðslustofunni, er séns að sjá þessa útkomu ? Hér í þessum heimshluta virðast allar konur hafa svaka sítt hár og klippararnir kunna því lítið nema að særa enda eða klippa "trukkalessu" klippingar. Ég er bara farin að safna aftur. Ta taa/L
hahhaha
hefði vilja sjá trukkaralessuklippinguna, hvernig hún lítur út:)
Hér eru allar Indverskar konur annað hvort með sítt eða snoðað. Svo það var svosem ekki von á góðu. Ég tók mynd af snilldinni, sendi þér síðar. Þetta var ekki jafnasta klipping sem ég hef séð;) Hún er samt bara næst versta klippingin sem ég hef fengið á eftir klippingunni heima á AK þar sem ég fékk sömu klippingu og lekarinn í Labamba, og aðeins síðara öðru megin. Eg fékk þó leiðbeiningar þar um hvernig skildi greiða hana;)
Knus
Ella
haha panta eitt stykki af myndinni fyrir mig líka! Kannski verður þú bara trendsetter, hver veit? Heyrumst svo endilega fljótlega t.d. seinnipartinn á morgun? Kv. Vala
líst vel á að heyrast í dag vala, gætum tekið conference með Akureyrardeildinni:)
kv
ella
Ella mín. Þú verður að setja mynd á síðuna eða senda okkur líka :) Skellti upp úr yfir reglunum hjá klipparanum. En það er eins og þú segir gott að hárið vex bara aftur.
kv Gunna
Skrifa ummæli