sunnudagur, 9. desember 2007

Hvitt pakk

Við ákváðum að eiga góðan fjölskyldudag í dag og fara í dýragarðinn. Húsdýragarðurinn er eitt af því skemmtilegra sem Mikael gerir heima svo þetta var gott ráð. Í stuttu máli má segja að ég hafi aldrei samsvarað mér eins vel með öpunum og í dag því við vöktum jafnvel meiri athygli en þeir. Ég veit ekki hversu margar myndir voru teknar af okkur með hinum og þessum fjölskyldum sem allar vildu fá mynd af sér með hvíta pakkinu. Þetta er nokkuð skrítið hegðun, myndir þú stoppa svartan mann á laugarveginum og fá að taka mynd af þér með honum? Ég myndi halda kúlinu og láta eins og hann væri eins og allir hinir. Héðan í frá ef þið hittið einhvern frægan í Reykjavík, í guðana bænum leyfið þeim að vera í friði svona til að fá að falla inn, ég hef mikla samúð með frægu fólki eftir þennan dag!
Ofan á allt saman þá ákvað hann Surya að taka konuna sína með (bílstjórinn) sem var að sjálfsögðu hið besta mál, maðurinn vinnur alla daga vikunnar og sér ekki börnin sín nema annað slagði. Nema að hann var svo spenntur yfir þessu öllu að hann var stanslaust.. 'you see.. elefants?, 'you see lions there!' að draga okkur sem sagt fram og til baka og við vorum að vera nett geðveik. Maðurinn bara spenntur auðvitað og að gera sitt besta en okkur langaði bara að fá að rölta um með mikael í friði!
Eftir þetta allt saman þá ákváðum við að splæasa á okkur mat á eina 7* hótelinu í bænum, já 5* Taj Krishna dugði ekki einu sinni í þetta skiptið;) Það var svakalega næs, þar er hægt að fá sunnudagsbuffei á 1600 kall íslenskar sem er nokkuð gott. þarna ser sundlaug og hoppukastalar og nóg pláss fyrir Mikael að hlaupa. Og það sem mikilvægast er.. fullt af hvítu pakki og indversku pakki sem er vant hvítu pakki svo okkur leið eins og heima hjá okkur! Það má alveg eyða helgunum þarna.
Eftir þennan dag þá sjáum við enn betur hvað það er mikilvægt að fá okkur hús í lokuðu hverfi eins og Whisper Valley, þar sem maður getur gengið um göturnar og farið á leikvöllinn án þess að það sé potað í mann (amk. ekki mikið). Í Whisper Valley er mestmegnis útlendingar en líka Indverjar svo það er fínt, og mikið af barnafjölskyldum. Ef við fáum húsið þar þá vill Surya endilega flytja í þjónustuhúsið með konuni sinni og hún fái þá vinnu við að þrífa skítinn undan okkur hvíta pakkinu. Það er smá hús aftan við húsið, um 12 fm fyrir þjónustufólk. Þetta er mjög algengt hérna. Ég verð nú að viðurkenna að mér finnst hálf óþægilegt í fyrsta lagi að hafa einhvern búandi í svona kompu og í öðru lagi búandi á lóðinni hjá mér. Surya sýndi mér íbúðina sína í dag (vildi endilega sýna mér að núverandi íbúð er ekkert stærri en þjónustuhúsið) og þetta er um 9-12 fm, ekkert rúm, bara hillur og hellur til að elda í einu horninu. Ég geri ráð fyrir því að þau leggi teppi á gólfið eða eitthvað á nóttunni til að sofa. Börnin þeirra búa svo í þorpinu hans hjá mömmu hans og pabba. Þetta er mjög algengt hér að fólk í þessarri stétt búi við þessi skilyrði en ég veit ekki hvort ég vilji hafa einhvern búandi hjá mér við þessi skilyrði. Hins vegar þá væri þetta búbót fyrir hann því þá þarf hann ekki að borga leigu og konan fær vinnu. Spurning... :(
Jæja, ég ætla að hætta þessum vælupóst! Nokkrir dagar í ísland! Kjöt... fjölskylda og vinir og allt meðfylgjandi! Við sáum smá jólastemmningu á Novotel (hótelinu) í dag, annars fer ekki mikið fyrir þeim!
Gleðilega vinnuviku öllsömul
Ella

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Af hverju leigir þú ekki tvær íbúðir í complex'inu - eina fyrir ykkur og eina fyrir bílstjórann. Þá gæti hann haft alla fjölskylduna hjá sér, þú sefur vel á nóttunni og þið getið fengið ykkur hænur og geitur (eða kýr) í 12fm kofann.

Ella sagði...

hahahha
Ekki slæm hugmynd. Það er verst að bílstjórinn væri orðinn full dýr í rekstri þá;)
Annars held ég að ég fái mér frekar hænur, annars eru froskar þarna líka, pínulitlir;) Þær gætu gætt sér á þeim.

Nafnlaus sagði...

Gott að þú ert með forgangsröðina í lagi: "Kjöt... fjölskylda og vinir" haha .. og veistu að í Frakklandi þykja froskar ágætis kjöt. Hugmynd? Neyðin kennir naktri konu og allt það ..
Kveðja, Vala

Ella sagði...

Þú ert aðeins of skörp Vala;)
En þetta er ekki fjarri lagi, skype, softphone, msn, blogg og gamli góði talsíminn svala nefnilega fjölskyldu og vinatengslum upp að ákveðnu marki en því miður er ekki enn hægt að fá djúsí medium-rare nautasteik með rauðvínssósu, bakaðri kartöflu og rauðvíni víraða yfir internetið.