Andstæður er sennilega það orð sem lýsir Indlandi hvað best. (já og rusl, skítur... ;)
Við búum enn á íbúðarhóteli nálægt Hi-Tech City. Vinnan mín er í Begumpet sem er eitt þéttbýlasta svæðið í borginni svo það er oft umferðarhnútur á leiðinni í gegnum það svæði á leiðinni heim. Annar umferðarhnútur tekur við þegar við nálgumst Hi-Tech sem er hverfi fullt af 10-20 hæða nýtísku skrifstofubyggingum sem hýsa fyrirtæki á borð við Microsoft, Nokia, Google og Satyem sem er 50.000 manna Indverskt hugbúnaðarfyrirtæki. Til þess að losna við Hi-Tech hnútinn tekur Surya oft hjáleið sem er innan 5 km radius frá Hi-Tech og liggur um malarvegi, fátækrahverfi og mjög local hverfi með 12 fm húsum. Rusl út um allt. Ef það er smá auður blettur, þó svo hann sé alveg ofan í aðalgötu þá er hann nýttur undir skýli fátæklinganna sem eru gerð úr rusli. Þar sitja þau og snæða kvöldmat ofan í allri menguninni og börnin leika sér í vegakantinum.
Royal Mess and Chineese Fast Food er skilti yfir einum Indverska skyndibitalúgustaðnum á leiðinni heim úr vinnunni. Þetta fær mig alltaf til að brosa. Þessi titill er mjög indverskur og fullur af andstæðum, sérlega í ljósi þess að útlitið á sjoppunni er ekkert sérlega 'royal'.
Það er líka algengt að sjá skítugar lúgusjoppur með stórkostleg skilti eins og 'Ultra Hi-Technology televisions', 'Super specialists dentists', 'Multispecialists technology store' og þar frameftir götunum. Það er hin mesta skemmtun að lesa á skiltin, Indverjar eru örugglega heimsmeistarar í skiltum. Í fyrradag keyrði ég fram hjá einni sjoppu að selja jólaskraut, fyrir framan sjoppuna var gamall maður með bananavagn á moldarveginum. Það er eitthvað svo skondið við þetta.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
He he já þetta er skrautlegt land. Vinnufélagi minn frá Kashmir fór í háskóla í Dehli. Hann kvartaði undan svínslegri samkeppni á vinnumarkaðnum í lokinn því það væru svo margir sem aldrei færu í háskóla en færu bara í næstu búð og keyptu fínt diploma með gyllingu og skrautskrift þar sem þú getur fengið hvaða gráðu sem er fyrir nokkrar "rupís". Svo fer framhaldið bara eftir því hversu sniðugur viðkomandi er að villa á sér heimildir - lítið eftirlit !
Hann fór því til Saudi Arabíu í leit að meiri þar sem er minni samkeppni þar var sama sagan - falsaðar PhD og MSc gráður hjá vinnufélögum hans...keyptar á útsölu í Indlandi voðalega fínar með gyllingu í flottum römmum. Sniðugar jólagjafir :-) Kveðja/L
Góð hugmynd! Kannski draumurinn um dr. Ellu verði að veruleika fyrir jól!
Ég hef heyrt það að indverjar séu snillingar í að fara í atvinnuviðtöl. Það sé frekar erfitt að fiska út eftir viðtali hvað viðkomandi kann, svo ekki sé talað um CV-in þeirra sem eru öll mjög dýrðleg. Enda eru Indverjar mjög dramatískir og ósparir á lýsingarorðin.
Ella, heldurðu að þú kippir ekki einni gráðu með fyrir mig í leiðinni. Ég get þá sleppt því að sitja hérna og læra fyrir próf....og bara eingöngu einbeitt mér að blogglestri!
Gaman að heyra frá ævintýrum ykkar. Haldið áfram að segja okkur sögur :o
Góða ferð heim!
kv. Ágústa
Skrifa ummæli