
Þær eru ekki glæsilegar allar búðirnar í Hyderabad en þar er hægt að finna ýmislegt. Ég dró Konna og Mikael með mér í Abids sem er eitt verslunarhverfið af gömlu gerðinni til þess að finna mér boxpúða. Ég fann hann í Bharats Sports Copany, svakalega fínn leður-professional boxpúði frá Jason. Jason er víst ekkert prump merki, þetta er alvöru merki, þeir til dæmis framleiða rúlluskauta líka samkvæmt afgreiðslumanninum.
Fyrir neðan Bharats er önnur búð og þar fann ég ótrúlegt en satt, kumitehanska. Svo nú getur mín farið að hamast, það er bara spurning hvort viftan þoli þungann af púðanum (já og spörkunum;).
4 ummæli:
Þetta er ótrúlega fyndið og skemmtilegt blogg hjá ykkur. Kem oft í heimsókn. Væri nú skemmtilegastað koma í eigin persónu samt. Var að skoða myndirnar frá Goa. Það hlýtur að vera erfitt fyrir svona lítinn bleiknefja að vera í svona mikilli sól. Ég sé reyndar að hann er sá eini sem brennur ekki, þið berið greinilega vel á hann en ekkert á ykkur!!! Knús og kossar, Brynja Þorgeirsdóttir
Þú er alltaf velkomin í heimsókn Brynja, ekki nema 12 tíma flug og 40 stiga hiti handan við hornið.
Þetta var sannkallað brunafrí. Stöðugt að hugsa um að barnið brenni ekki en svo stöndum við nánast í ljósum logum.
Gaman að skoða myndirnar hjá ykkur. Þið hafið það greinilega mjög huggulegt. Passið ykkur á sólinni, ekki brenna upp. Hafið það sem best.
kv. Rakel frænka
Sæl frænka, gaman að sjá þig hér. Velkomin.
Skrifa ummæli