
Vonum bara að HANN sé ekki utan þjónustusvæðis.
Flestir íbúar í Goa eru Kristni trúar (kaþólikkar). Hér eru kirkjur í stað hofa, þökk sé portúgalskum trúboða og yfirráðum Portúgala allt til 1961. Ekki alveg það sem maður á að venjast með öll þessi hof og hinduisma í kringum sig.
Við erum komin með nýja ljósmynda og myndbandasíðu, gamla fotki síðan er enn virk en hér er framtíðin (enda unnið á Mac): http://web.mac.com/konniogella/ Endilega kíkja inn og fá sér kaffi og karrý. Opið allan sólarhringinn.
Konni
Engin ummæli:
Skrifa ummæli