Við biðjum áhorfendur um að afsaka biðina, dagskrárstjórar brugðu sér úr hlaði en vegna tæknilegra örðuleika var ekki unnt að hefja dagskrána á áætluðum tíma.
Við erum ekki með neitt net heima. Velkomin til Indlands:) Það var reyndar frábært að koma heim eftir tveggja vikna flakk. Ferðin gekk alveg meiriháttar vel og myndirnar skila sér vonandi á myndasíðuna okkar í vikunni með smá ferðasögum.
Það er alltaf skemmtilegt að bæta nýjum asíulöndum á kortið, hvert og eitt er einstakt en asískt og það er gaman að bera þau saman. Beijing stóð algveg upp úr enda höfum við hvorugt komið til Kína sem er töluvert þróaðara en mörg önnur asíulönd. En það sem stendur eftir er minningin um gamalt og nýtt stórveldi. Sagan er svo áþreifanleg í Beijing en það sem gerir hana líka einstaklega skemmtilega heim að sækja er að það er hægt að eyða morgninum í mollum að skoða alla nýjustu tísku í glæsilegum nýjum byggingum en rölta svo eða taka taxi til að eyða hádeginu eða síðdeginu í 600 ára gömlum 'Hutongs' sem eru gömul hverfi með lágreistum byggingum í gömlum kínverskum stíl. Meira um það síðar.
Þegar maður ferðast til margra landa er gaman að bera saman fólkið og ferðamátann. Í Beijing er lítil talva fyrir framan öryggiseftrilitið þar sem þú getur gefið álit þitt á hversu fljótt og góð þjónustan var við passport tékkið. Þegar við komum til Indlands hófst biðin í löngum biðröðum að eftirliti og við tók gamla tilfinningin að þú værir glæpamaður í búningi saklausrar konu í viðskiptaerindum með Konna og Mikael sem 'props' til að gera gervið trúlegra.
Þegar út var komið fór ekki á milli mála að við vorum komin til Indlands. Blessunarlega tókum við monsoon með okkur frá Thailandi en við tóku köll og flaut sem tilheyra indverskri umferð. '.. feels like home':)
Litla indverska fjölskyldan okkar tók vel á móti okkur. Surya tók skælbrosandi á móti okkur á flugvellinum. Ég elska að hafa einkabílstjóra. Lakshmi mætti morguninn eftir að elda handa okkur morgunmat. Og um hádegið hringdi Mamatha og tilkynnti að hún hefði komið kvöldið áður að elda hrísgrjón, dahl og ciabatti sem mætti finna í ísskápnum. Við eigum svo sannarlega eftir að sakna þeirra þriggja! Mamatha er núna að reyna að sannfæra okkur um að búa á indlandi þangað til Mikael verður 14. Þá meigum við flytja heim:)
Meira síðar, ekki gefast upp á okkur. Það eru tvær og hálf vika eftir af indverskum sögum og blaðri.
Stay tuned...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Velkomin aftur Ella mín. Var farin að sakna þess verulega að lesa pistlana þína. Hlakka til að hitta ykkur þegar þið komið alveg heim :)
Bestu kveðjur til strákanna.
kv Gunna
Takk Gunna mín, það er gott að við höfum amk. einn traustan lesanda að bullinu í okkur:)
Hlakka til að sjá þig og ykkur öll í september.
ella
Frábært að heyra að þetta gekk upp með íbúðina ykkar! Ég er búin að vera að þvælast á Krít þar sem menn nota orðið 'Ella' eins og frakkar nota Sa'va. Þannig að mér hefur oft verið hugsað til Ellu undanfarið.
Hlakka til að sjá ykkur!
:)
MD
Skrifa ummæli