Hefur þú einvherntíman þurft að opna .iso image? iso skrár eru oft notaðar til að geyma backup af cd/dvd, sem er hentugt til að senda cd/dvd yfir hafið í gegnum angalanga internetsins (með smá dash af þolinmæði).
Ef þú ert með windows þá þarftu að hlaða niður einhverju tóli til að opna þessar skrár, svo ég fór auðvitað á stúfana að finna sambærilegt fyrir makkann þó svo ég sé líka að keyra windows á makkanum (en bara í neyð).
Leitarniðurstöður sýndu að auðvitað þarf ekkert neitt tól, Finderinn í Makkanum styður þetta beint svo eina sem þarf að gera er að þrýsta staðfast tvisvar á músina og sem töfrum líkast opnast skráin.
Ég hugsaði mé mér, þetta er snilld, ég þarf að blogga um þetta...
Þetta blog var í boði Ellu Makkahnakka, ef þú ætlar að fá þér nýjan lappa, fáðu þér Makka!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Sko viltu vera artí fartí eða viltu vera nördí? Það er spurningin sem þarf að svara áður en maður bara veður útí búð og gerir einhverja vitleysu. Geir segir ekki meir :)
ég vil bæði vera artífartí og nörd, Makkinn uppfyllir bæði:)
Ég heyri að þig langar
Makkinn er málið, ekki bara fyrir artífartí nörd heldur líka fyrir íhalds- og afturhaldsama bankamenn.
Skrifað á Makka
Stóri bróðir
Skrifa ummæli