þriðjudagur, 26. febrúar 2008

6 búnar, 93 eftir

Ég fór aftur á 99 varieties of Dosa í hádeginu og í þetta skiptið dró ég félagana úr vinnunni með. Þarna er nefnileg hægt að fá fínan hádegismat fyrir 120 kall íslenskar sem er reyndar dýrt við hliðina á matnum í vinnunni sem kostar 50 kall.

Ég smakkaði eftirfarandi:
Cheese masala dosa
butter masala dosa
lady finger butter masala dosa
spinach masala dosa
scrambled butter dosa
crispy crispy dosa (ala Nutan)

Þá á ég bara eftir að smakka 93 afbrygði af dosa og þá get ég farið heim!

Engin ummæli: