miðvikudagur, 13. ágúst 2008

Heimanmundurinn

Það er ágúst árið 2008. Það er IT sprengja í Hyderabad, konur sem karlar flykkjast til stóru IT fyrirtækjanna sem þrífast á því að enn er vinnuaflið ódýrara en á vesturlöndum. Konur vinna við hlið karla og eiga að vera með svipuð laun þó svo mig gruni að það sé einhver munur.

Í Hyderabad tíðkast að gefa heimanmund. Þetta er gömul andstyggileg hefð sem á flestum stöðum er búið að leggja niður en er enn mjög ríkjandi á þessu svæði, í öllum stéttum. Heimanmundur getur þýtt ýmislegt en alltaf er heimanmundur greiddur af foreldrum konunnar. Eigandi Taj Krishna og Daj Deccan hótelanna í Hyderabad fékk þau sem heimanmund frá tendó, landeigendur gefa mangóekrur í heimanmund, hjá lægri stéttum eins og mörgu þjónustufólki er þetta lágmark 2 lakkar eða um 400 þúsund IKR sem er gríðarleg upphæð fyrir þetta fólk.

Í þeim tilvikum sem tengdaforeldrar konunnar eru anstyggilegir, þá hirða þeir allan heimanmundinn. Í tilviki Mamöthu þá greiddu foreldrar hennar 2 lakka með henni, ásamt alls kyns húsbúnaði og raftækjum. Þetta fór allt saman til tendaforeldranna og ekki króna til nýju hjónanna. Auk þess flutti hún inn til þeirra auðvitað og sér þar um heimilið. Svo þau fengu (keyptu) í raun ókeypis húshjálp, sem var greitt með í þokkabót.

Þegar heimanmundurinn fellur á eindaga kemur stundum upp úr krafsinu að foreldrar konunnar hafa ekki burði til að greiða heimanmundinn. Mér skilst að það sé nokkuð algengt að í þeim tilvikum að hin nýgifta fremji sjálfsmorð, eða þá að tengdaforeldrarnir nýju myrða hana. Grey konan lendir á milli foreldra sinna og nýju tengdó og er eina fórnarlambið í málinu.

Nú ertu að hugsa, "þetta er væntanlega bara í lágstéttunum". En mér varð hugsað aftur til heimanmundsins í vikunni þegar félagi minn á skrifstofunni tilkynnti okkur öllum að það væri búið að ganga frá kvonfangi fyrir hann. Það var búið að taka óvenju langan tíma því stjörnurnar pössuðu aldrei saman hjá honum og kandídatnum. En nú er þetta loksins komið sem er frábært því þetta er alveg frábær strákur. En.. hann tilkynnti okkur að þar sem hún á 3 systur, þá munu foreldrar hennar ekki geta greitt heimanmund. Sem honum fannst svosum í lagi þar sem hún vinnur fyrir sér.
Ég óskaði honum auðvitað til hamingju og sagði að það færi frábært að sleppa þessum heimanmund enda væri hann gríðarlega móðgandi fyrir konuna.

Það sló þögn á hópinn.

Uhhh. Sko, konan vinnur fyrir sér, hún á eftir að ganga með börnin þín, hún á eftir að ala þau upp, elda, þrífa og allt það... en samt þarf að greiða með henni? Þetta er auðvitað móðgandi.

Enn meiri þögn.

Mér tókst að slá þessu upp í grín með því að láta mig hverfa bak við næstu mannesku og segjast ekki vera á staðnum.

En eins og þið heyrði er þetta ennþá viðkvæmt mál, amk í samræðum milli konu og karla. Ef ég spyr stelpurnar eru þær auðvitað allar á sama máli, þetta er móðgandi og algerlega úrelt.

Svo. Stundum þarf maður að læra að þegja en stundum er best að segja bara það sem manni finnst.

6 ummæli:

Unknown sagði...

Gott hjá þér Ella að segja þína skoðun. Held það hjálpi til að þau heyri þína skoðun á svona málum. Þú ert jú með utan að komandi sýn á Indland og þeirra siði. Vonandi breytast þessir hlutir hægt og rólega í rétta átt.
Bestu kveðjur úr Vesturhlíðinni :)
Gunna

Sigríður sagði...
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.
Sigríður sagði...

Nú líst mér vel á þig Ella, hristu nú upp í þessu fólki áður en þú ferð - ekki veitir af!

rosant sagði...

Heimamundur er góður og gildur siður og synd að hann skuli hafa aflagst hér á ísaköldu Fróni.

Nokkrir úlfaldar og jafnvel kameldýr hefðu komið sér vel á fyrstu búskaparárunum.

Stóri bróðir

Ella sagði...

Gaman að sjá að þú lest annað slagið bloggið stóri bróðir.

Já þú hefðir kannski fengið rauðu hrissuna með henni Sigríði, það hefði komið sér vel í bónusferðum;)

Unknown sagði...

Gott hjá þér! Það er forsenda til að hnika við gömlum hefðum að vekja athygli fólks á því að það eru fleiri en ein hlið á málinu. Annars breytist ekki neitt.