Föstudagskvöld:
Drykkjarvatnslaust, vatnsstrákarnir komu ekki alla vikuna.
Netlaust. Eftir eina og hálfa viku tókst Ellu að kaupa áfyllingu á netreikninginn. En netið virkar auðvitað ekki.
Það er búið að loka símanum hans Konna
Talvan hans Konna er biluð (líklega út af 8 mánuðum af óstöðugu rafmagni)
Síminn hennar Ellu er enn í viðgerð. 3 mánuðir eru liðnir. Guarantee að hann verði til á Laugardag.
Það er rigning.
Laugardagur:
Konni hringdi í Tata Indicom til að koma að laga netið. Kemur í dag, 100% guarantee. Enginn kom.
Vatnsstrákarnir komu, nú er drykkjarvatn í boði.
Það er ekkert heitt vatn í íbúðinni, Ella fór í kalda sturtu, Mikael slapp við kvöldbaðið. Konni þreif sig ekki neitt.
Það rigndi allan daginn.
Sunnudagur:
Tata Sky inneignin rann út, við skuldum 50 ISK. Ekkert sjónvarp. Við fórum í 8 búðir til að kaupa áfyllingu, engin átti áfyllingu.
Surya spurði hvort Tata Sky væri lyf.
Það hætti að rigna.
Ennþá ekkert heitt vatn í boði.
Ella fór í kalda sturtu.
Mikael fór í stutt kalt bað.
Konni þreif sig ekki neitt;)
Lakshmi kom ekki að þrífa, allt var skítugt, ekkert hreint leirtau í boði (við nennum auðvitað ekki að vaska upp lengur)
Skjárinn á tölvunni Ellu fór að blikka bláskjá. Hún var tekin úr sambandi með hraði.
Þeir sem þekkja okkur Konna vita að við erum ekki þolinmóðasta parið á jarðríki, en sem merki um hvað við erum orðin vön því að búa á indlandi þá hlógum við að þessu öllu saman:)
6 ummæli:
Jaherna! Þið hljotið að koma fullnuma i þolinmæðisfræðum eftir þessa dvöl ykkar i HYD. :)
Samtökin "Fischer heim" eru komin í málið - enda verkefnalaus til nokkurra ára. Þið verðið sótt.
hahahha
Verður þetta ekki örugglega einkaþota Geir? Með nettengingu auðvitað og barnfóstru;)
hlakka til að sjá ykkur á klakanum
ella
Það er greinilega verið að taka gott test á þolinmæði ykkar allra áður en þið kveðjið Indland.
Það er greinilega verið að taka gott test á þolinmæði ykkar allra áður en þið kveðjið Indland.
Batnandi fólki er best að lifa,
ef þetta hefði gerst fyrir nokkrum árum þá hefðu viðbrögðin mælst á jarskjálftamælum veðurstofunnar.
Stóri bróðir
Skrifa ummæli