Jæja, síðasti vinnudagurinn í Hyderabad að enda. Við pökkuðum (já ok, sáum um að 5 menn pökkuðu) dótinu okkar í gær og því er nokkuð tómlegt heima.
Við eigum von á góðum gestum í kvöld en vinir okkar sem við höfum kynnst hér undanfarna mánuði ætla að sulla niður nokkrum bjórum með okkur og hlæja í síðasta sinn í bili að þessum vitleysingjum hérna í indlandi:)
Takk fyrir áhorfið, og öll commentin. Það var verulega gaman að fá að heyra í ykkur annað slagið og okkur hlakkar mikið til að hitta ykkur öll heima á fróni eftir rúmlega viku.
Við fljúgum annað kvöld til Amsterdam, svo til Barcelona og ætlum að dunda okkur þar í faðmi fjölskyldunnar (Ellu) í viku. Hitta tvo nýja fjölskyldumeðlimi í fyrsta skiptið og skála fyrir ömmu gömlu sem ætlar að dansa inn í sjötugsaldurinn:)
Knús og kossar til ykkar allra.
Ella, Konni og Mikael Tumi
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Goða ferð a morgun!! Sjaumst eftir nokkra daga. :)
Oh.... nú sé ég hvað ég er búin að vera ódugleg að skrifa komment og yfir höfuð að fylgjast nógu vel með ykkur. Núna er bara ævintýraferðin mikla yfirstaðin og við taka ekki síður spennandi íslensk ævintýri :) ...og ég notaði ekki einu sinni tækifæri og dreif mig í heimsókn til ykkar! En nú er ég komin til Danaveldisins og þið meira en velkomin í heimsókn - það er kannski aðeins styttra að fara ;) Bloggið mitt er: www.123.is/ardis
Góða ferð heim á frón - bið að heilsa :)
Skrifa ummæli