miðvikudagur, 5. desember 2007

Indverskt spítalalíf

ÚFF...síðustu dagar hafa verið ansi erfiðir! Ella og Mikael Tumi hafa þjáðst af veikindum sem enduðu með því að Mikael Tumi var lagður inn á spítala með næringu í æð. Greyið fékk svæsinn indverskan vírus úr umhverfinu sem leiddi ti upp- og niðurgangs af verstu sort í sex daga, í kjölfarið þornar líkaminn upp. En eftir þrjá daga á spítala með næringu í æð erum við komin heim og Mikael farinn að sýna nokkur batamerki, tekur næstu viku að ná fullum styrk. Spítalinn var hreinn og fínn enda einkarekinn og með skilti sem bannar þjórfé. Læknarnir tala líka ensku sem betur fer, hjúkkurnar voru ekki eins sleipar í enskunni, frekar ótraustvekjandi að fá takmarkaðar upplýsingar vegna tungumálaerfiðleika. Allt reddaðist þetta að lokum með indverskri og íslenskri samvinnu.


Konni

11 ummæli:

SI-India sagði...

Hii
Nice Blogging!
Why dont u do it in English?
thank you

Unknown sagði...

Gott að heyra að Mikael er að braggast. Bestu kveðjur til ykkar allra.
Gunna

Nafnlaus sagði...

Gott að þau eru að hressast. Er búinn að hugsa mikið til ykkar undanfarna daga.
Vona að Mikael sé þar með orðinn ónæmur fyrir þessum vírus.
Hlakka til að sjá ykkur um Jólin.

Nafnlaus sagði...

Æææ leiðinlegt að heyra að mæðginin hafi verið svona veik. Vonandi náið þið að hressast fyrir heimferðina, það eru bara, hvað ... 10 dagar?
Sjáumst þá, Vala og co

Ella sagði...

Hæ hæ
Já við eigum flug heim 14.des kl. 2.00 og erum komin heim seinnipartinn þann 14. sem er föstudagurinn í næstu viku:)

Okkur hlakkar mikið til að koma heim í allar kræsingarnar! Það verður gaman að 'stökkva' svona inn í jólin. Eina vísbendingin um jólin hér eru litlir strákar að selja jólasveinahúfur í umhverðarhnútunum:) Er búin að kaupa þrjár, eina handa mikael og tvær handa börnunum hans Surya sem er bílstjórinn okkar.
Knus
ella

Unknown sagði...

Vonandi batnar ykkur öllum fljótt og vel!

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra að þið séuð að hressast OG að þið hafið aðgang að sæmilegum spítala. Hér eru jólin að koma - fólk að skreyta og mikið verið að hamast við að versla með tilheyrandi umferð og stressi hehe. Allt farið að fljóta um í hangikjöti, kartöflum, jafningi, laufabrauði og grænum baunum... nammi namm :-) Meira að segja komin ca. 1cm jafnfallin snjór í borg myrkursins.
Hringdu í mig Ella ef þú átt lausa stund fyrir jól, fáum okkur kakó eða eitthvað þaðan af betra ;-)

kv,
Þórgunnur.

Ella sagði...

Hrikalega líst mér vel á þetta boð Þórgunnur:) Ég heyri í þér þegar ég kem á klakann.

knus
ella

Lína og Alex: sagði...

Hæ,

Vonandi eru allir að ná sér í mallanum! Jólin á Íslandi með tilheyrandi kræsingum ættu að snúa næringarástandinu á réttan kjöl :)

Bestu kveðjur frá okkur,

Lína & Alex

Nafnlaus sagði...

Leiðinlegt fyrir ykkur að þurfa að ganga í gegnum þessi veikindi - það hefur verið lífsreynsla út af fyrir sig og sérstaklega að horfa upp á Mikael verða svona veikan. Ég ímynda mér að það hafi tekið á.

Úr þessu er allt upp á við - ekki satt? Hlakka til að sjá ykkur um áramótin.
/Sigga

Ella sagði...

Jú nú er allt upp á við:) Síðustu dagar hafa verið mjög góðir, við fundum barnóstru handa Mikael sem er alveg frábær. Talar nokkuð góða ensku og er lærð hjúkka (veitir ekki af!).