Það er ekki einfalt mál og oft frekar snúið að finna ákveðna staðsetningar í Hyderabad, ástæðan er ofureinföld. ÞAÐ ERU ENGIN HÚSNÚMER Í BORGINNI. Allar leiðbeiningar fyrir ákveðnum staðsetningum byggist á því að vita um eitthvert hús, fyrirtæki eða þekkt kennileiti sem er nálægt þeim stað sem þú ert að fara til. Þetta flækir málið nokkuð fyrir nýbúa en lókallinn virðist stundum álíka ráðþrota. Sumir bílstjóranna okkar virtust reyndar aldrei hafa farið út úr húsi, voru hreinlega úti að aka. En nýi bílstjórinn okkar virðist hafa séð meira af borginni en fyrrum bílstjórar...okkur til ómældrar gleði.
Annars er ég með viðskiptahugmynd. Skella mér í Byko kaupa nokkur bretti af húsnúmerum, ganga í öll hús í Hyderabad og selja húsnúmer. Ef við fegðar skiptum liði þá ætti þetta verkefni að halda okkur við stafni allt næsta ár og duga fyrir nokkrum sekkjum af hrísgrjónum. Ég þyrfti þá reyndar líka að redda mér heilan helling af nafnspjöldum, hér ertu núll og nix ef þú átt ekki nafnspjöld til að dreifa í tíma og ótíma. Ég hef fengið sirka 20 nafnspjöld á þessum stutta tíma sem við höfum verið hérna. Indverjarnir verða hálf undrandi þegar ég gef þeim ekki nafnspjald á móti, er farinn að segja þeim að nafnspjöldin mín séu í prentun. Þeir taka það gott og gilt, annars væri heiðurinn að veði.
Aftur á móti er aðalsöluvaran á Indlandi að selja Indverjum andlitskrem sem gerir þá hvítari....þeir þekkja greinilega ekki Michael Jackson heilkennið. Ætti kannski að athuga að selja þeim líka brúnkukrem.
Konni
föstudagur, 30. nóvember 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hæhæ
Takk fyrir pistlana. Verulega gaman að fylgjast með tilveru ykkar í Hyderabad :)
Hvernig gengur með húsið? Er kominn tími á hvenær þið fáið það og hvenær þið flytjið?
Bestu kveðjur til ykkar allra :)
Gunna
Skrifa ummæli