laugardagur, 15. desember 2007

...og enn á heimleið

Eftir tólfstunda veru á flugvellinum á frankfurt í gær og 3 klst bið eftir upplýsingum um hótel og farangur frá Icelandair þá tilkynntu þeir að vegna þess að fluginu var aflýst vegna náttúruafla þá myndu þeir ekki greiða hótel. Þeir vissu það auðvitað fyrr um daginn svo Icelandair var ekki að skora mörg stig hjá hópnum sem var búinn að bíða og er ekki efst á vinsældarlistanum hjá mér þessa stundina. Auk þess var farangurinn okkar farinn til íslands skv. piltinum sem afgreiddi okkur á flugvellinum. Við eigum flug heim í dag á sama tíma og í gær, eitthvað um hálf tvö svo vonandi komumst við heim seinnipartinn. Mikael grey var alveg kominn með upp í kok á þessu ástandi í gær og stóð hreinlega á öskrinu á köflum enda enn með niðurgang og magakrampa eftir síðustu árás Indverskra örvera. Það er ekki lítið lagt á lítinn gutta sem verður heldur betur glaður að koma heim í ömmur og afa og litla frændur.
Það sem toppaði daginn var að í fyrsta seinnipartskrampanum sem kom í launchinu var okkur hent út, sennilega eðlilega því þarna skal vera ró og friður. Ekki org og öskur. En þetta toppaði alveg saginn hjá okkur!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekki öfundsverðar aðstæður :(

...alltaf sama skítaveðrið hér á fróni :) búið vera ömurlegt í alltof langan tíma.