fimmtudagur, 10. janúar 2008

Nákvæmni

Þá erum við mætt á svæðið á ný, það var hressandi að standa fyrir utan eina aðalgötuna í fyrradag og anda að sér umferðinni í allri sinni mynd. Þetta eru tveir ólíkir heimar; ísland og Indland, ein yngsta þjóð í heimi og ein elsta þjóð í heimi.

Við vorum nokkuð spennt yfir því hvað tæki á móti okkur. Myndi bíll bíða á flugvellinum? Voru rúmin komin í hús? Var allt búið að gera í húsinu sem átti að klára? Ótrúlegt en satt þá beið okkar bíll, rúmin voru komin ásamt öllum húsgögnum (nema skápum) og flest allt búið. Þetta hefur gengið eins og í lygasögu.

En ég ætlaði að tala um nákvæmni. Indverjar eru vanari ögn skírari fyrirmælum en við íslendingar. Ég sat hér á fundi með vinnufélögum mínum í gær, og við vorum að fara yfir þarfagreiningarlýsiingu frá Calidris; skjal sem á íslenskan mælikvarða (amk. Calidrískan) er mjög gott, ótrúlega nákvæmt og hrein hátíð að vinna eftir. Hún var alls ekki sátt, þetta var alls ekki skírt! Til dæmis stóð að kerfið ætti að styðja alla helstu shortkutta í windows. En það stóð ekki hvaða shortkutta og það var bara alls ekki nógu gott:) Ég fór nú að brosa og benti henni á að á okkar mælikvarða væri þetta mjög skírt, hún þyrfti bara að nota almenna skinsemi til að reikna út hvaða shortkutta hún ætti að prófa.
Konni sendi bílstjóran út á örkina í gær að kaupa sexkannt og millistykki (með þremur innstungum). Bílstjórinn kom til baka eftir 2 klst tómhentur, sexkanntur var ekki til í borginni og ekki millistykki fyrir 3 innstungur, bara fyrir 4:)

Við erum ekki komin með net heima svo það er smá bið í að það heyrist í honum Konna. Á meðan fæ ég að eiga síðuna útaf fyrir mig:) Njótið.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gott að þið eruð komin "heim" heilu og höldnu og að þetta er allt saman að lukkast svona líka rosalega vel. Það var svo gaman að hitta þig um jólin elsku Ella mín og vildi ég bara óska þess að við hefðum nú getað hist oftar en einu sinni. En það gengur bara betur næst ;)

Ég er enn að jafna mig eftir sögurnar frá Indlandi - spennandi og framandi :) Bíð spennt eftir fleiri sögum :)

Helga sagði...

Frábært fyrir ykkur að allt er að komast á rétt skrið. Vonandi tekst ykkur að netið í lag heima svo Konni komist í samband við umheiminn.

Hafið það sem best og ástarþakkir fyrir samveruna á Íslandi.