Bangalore er skemmtileg borg. Töluvert hreinni, grænni og nútímalegri en Hyderabad. Það er mikill IT bransi þarna og meðal annars sá ég torg merkt Sonata en Sonata sér að viðhalda því. Mér fannst líka maturinn betri en það er sennilega líka útaf því að ég var alltaf með Ravi ig VJey í að velja ofan í mig það besta af matseðlinum. Helstu uppgötvanirnar eru Idly og Dosa sem er algengur morgunmatur í Indlandi. Idly er hrísgrjónakaka sem maður dýfir ofan í hvíta (sterka) og rauð (sterka) sósu. Dosa er pönnukaka sem er líka díft ofan í hvíta og rauða sósu. Masala Dosa er svo Dosa með kartöflurétt inni, svakalega gott.
Ravi og VJey buðu okkur í mat á sunnudagskvöldið svo við gætum bragðað heimalagaða mat. Í matinn var Dahl, hrísgrjón og Parata sem er chabatti fyllt með kartöflurétt. Alveg hrikalega gott. Almennt á indlandi er reglan sú að á norður indlandi borða menn brauð eins og Roti, Chabatti, Parata, Polka og Naan með matnum en á suður indlandi borða þeir hrísgrjón og meiri hrísgrjón. Þeir gera þetta ofugt í Karnataka sem er fylkið sem Bangalore er í, þar eru þeir miklar brauðætur en í Hyderabad sníst lífið um hrísrgrjón. Í Bangalore fá þau sér hrísgrjón eftir matinn til að fullkomna máltíðina;)
Við erum öll komin með bumbu af öllu þessu brauð, hrísgrjóna og dahl-áti. Olíur eru líka mikið notaðar í matargerð svo eitt lag af olíu er komið framan á vömbina. Ég dró fram æfingardýnu og nú dugar ekki annað en að gera magaæfingar á hverjum morgni.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Það var nú það síðasta sem ég átti von á að þið þyrftuð að berjast við offitu í Indlandi.
Sammála síðasta ræðumanni, en það væri gaman að sjá ykkur feit, ekki það að ég óska ykkur þess ekki, væri bara fyndið þar sem þið hafið alltaf verið svo grönn ;-D Hér er allt komið á kaf, snjótittlingar að borða korn í garðinum hjá þeim sem ég gef þeim á hverjum degi, Rúnar búinn að læra á svigskíði og Karen Helga farin að velta sér. Líf og fjör á Ólafsfirði, væri ekki fínt að henta eins og tveimur uppskriftum á Lísuna af svon hrísgrjónanammi-namm við tækifæri???
hafið það gott elskurnar
Knús á línuna frá liðinu í Undralandi
Ég er sammála, ég átti ekki von á því að þetta væri vandamál hér. Þetta er reyndar skrítið að þetta er bara belgurinn sem verður uppþaninn. Sonia sem vinnur með mér fræddi mig um það í gær að þetta væri af hrísgrjónunum og því væru allir með belg á suður indlandi en brauðæturnar í norðri væru þvengmjóar.
Lísa, það er aldrei að vita með uppskriftir. Eina vandamálið er að við eldum þetta auðvitað ekki sjálf;) Hún Mamatha (fóstran) er snilldarkokkur. ÉG bað hana um að kenna mér að búa til Chabatti, hún horfði á mig, brosti kurteisislega, hló aðeins og sagði að það væri alltof erfitt fyrir mig;)
Það er meira álitið sem hún hefur á mér.

Skrifa ummæli