mánudagur, 25. febrúar 2008

Goa, Rússar, 1985 og brúðkaup

Þá er veturinn loksins búinn í Hyderabad, þegar verst lét féll hitinn niður í 22-24 gráður hjá mister Celsíus. En nú stendur hann í 33-34 gráðum og fer hækkandi á næstum misserum, jafnvel upp að 45 gráðum....það er fjári heitt geri ég ráð fyrir. En sem komið er þetta alveg þolanlegt. Eins og stendur erum við ekki beint æst í að henda okkur í sólbað eftir sólbruna og flagnandi skinn á strandstaðnum Goa. En Goa er frábær staður eða réttara sagt fylki, allt til alls að drekka í sig sól, sand, sjó og bjór.

Tilgangur ferðarinnar var að skella sér í strandabrúðkaup hjá nágrannanum okkar, það er allavega okkar afsökun. Gistum á fínu hóteli fyrir utan að vera illa viðhaldið, skítugt, með vondan mat og stútfullt af miðaldra Rússum í marglita speedo sundskýlum í pakkaferð frá Moskvu....Á tímabili leit þetta út eins og speedo sundskýluráðstefna. Rússarnir töluðu við okkur einungis á rússnesku, starfsfólkið talaði við okkur á rússnesku, skiltin voru á rússnesku og líka matseðlarnir. Hver segir að 1985 sé hluti af fortíðinni? Eini maðurinn sem skildi þetta allt saman var Mikael Tumi, enda talar hann og skilur öll tungumál í heiminum.
Nú þurfum við ekkert að fara til Rússlands, fengum það beint í æð á Indlandi og án þess að upplifa skítakulda og kommúnisma. En hótelið var jú þriggja stjörnu og glæsilegt að öðru leyti og móttakan leit út eins og risastórt skip....það sérðu ekki hjá fimm stjörnu hótelum.

En þá að brúðkaupinu, frábært að upplifa strandabrúðkaup með öllu tilheyrandi. Ella og Mikael Tumi uppstríluð eins og indverskt kóngafólk.
Brúðgauminn mætti til skjalanna á fílsbaki, eina leiðin fyrir brúðina að toppa það hefði verið að krúsa inn ströndina á jetski eða lenda úr fallhlífastökki....sem hún gerði ekki. Brúðkaupið vakti mikla lukku á meðal baðgesta í nágrenninu og þar sem þessi strönd er vinsæl á meðal ríkra miðaldra hvítra speedoskýlusinna og þeirra maka mátti allt í kringum athöfnina sjá speedoana með videocamerur og gamlar konur í bikiní sem einna helst minnti mig á ákveðnar persónur úr "Little Britain"....förum ekkert nánar út í það. Alltaf gaman að upplifa eitthvað nýtt í lífinu. Að lokum endaði veislan með heljarinnar flugeldasýningu á ströndinni.

Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni á þessari tilraunavefsíðu: http://web.mac.com/konniogella/Myndir/Goa_Feb_3.html#5

Konni

4 ummæli:

Unknown sagði...

Frábærar myndir frá Góa. Þvílíka lúxuslífið á ykkur, lúxusklósett og allt! ;-)

Unknown sagði...

Geggjaðar myndir. Svakalega eru mæðginin flott í Indversku sparifötunum :)
Vona að sólbruninn fari að jafna sig.
Bestu kveðjur
Gunna

Ella sagði...

Já það er ekki að spyrja að því. Maður fer reyndar að hugsa hvernig hin klósettin eru ef það þykir ástæða til að merkja þetta luxury... amk. er greinilega markaður fyrir þetta:)

Lína og Alex: sagði...

Hæ - skemmtilegar myndir & svaka fínn kjóll sem þú hefur fundið :) Ég vona svo að bruninn sé að jafna sig, ég finn til í skinninu þegar ég sé sólbrunnið bakið þitt ! Gaman annars að sjá að þarna emur"prinsinn"ríðandi á feitum fíl en ekki hvítum hesti (sexý!)

Liebe grusse/L