
Mér leiddist svo í vinnunni í morgun og saknaði vinnufélaganna heima á fróni. Svo fór ég í mat og þegar ég kom aftur þá voru nágrannar mínir búnir að skreita svona líka svakalega vel í tilefni dagsins. Það er skreitingarkeppni í dag. Flottasti básinn fær verðlaun, hvað það verður veit enginn... kannski masala dosa? Þeir allavega björguðu deginum og brosið er aftur komið á smettið.
Talandi um Dosa þá fór ég á æðislegan stað í gær (og í fyrradag). Hann heitir 99 varieties of Dosa. Dosa er pönnukakan munið þið, eins og indian style Crépes. Ég er búin að smakka tvær gerðir og það eru þá 97 eftir. Ég er einni dosu á undan Konna en hann er bara búinn að smakka 1. 2-1 fyrir Ellu (þetta minnir á badmintonið, það skal reportað að ég tók karlinn í bakaríið um daginn;)
En njótið dagsins, hvort sem þið ætlið að halda upp á hann eða ekki. Ég fékk hjartalaga blöðru sem Konni keypti fyrir utan hjá afa í gær. Hún endaði hjá Mikael sem fannst hún hreint alveg æði.
Ella
ps. Erum að fara til Góu á morgun. Get ekki beðið! Leila og Rob eru að gifta sig á ströndinni þar á þriðjudaginn og mín er búin að kaupa sér indverskan kjól fyrir tilefnið, gyllt öklaband og gullsandala.
6 ummæli:
Skítt með skreytingarnar. Henda þeim í sundskýlu og þú ert komin með fegurðarsamkeppni!
Það er líka hægt að hafa þá í bandi.
Já Ella malaði mig í badminton, en ég er betri í tennis. Badminton er líka svona kvenna/homma sport.
Konni
jahá, ég veit ekki betur en foringinn (tennisþjálfarinn) hafi hrósað mér meira á síðustu æfingu!
Ég á eftir að taka þig í bakaríið þar líka, vittu til.
Heyrðu, pant fá mynd af EET í indverska dressinu !
hæ hæ gaman að geta fylgst með ykkur á þessari síðu;)
Vonum að þið hafið það rosalega gott,
kveðja Sandra og Andri Páll.
Tek undir með Línu og Alex: Mynd takk!
Skrifa ummæli