mánudagur, 11. febrúar 2008

Veðurfréttir

Eins og þið vitið þá er vinsælt að tala um veðrið á íslandi. Það er yfirleitt lítið að frétta af veðrinu hér, það er svolítið mis heitt, stundum skýjað og stundum ekki en yfirleitt hiti um 25-30 gráður.
En..... í morgun rigndi! Það er allt á floti á götunum en samt rigndi bara í um 10 mínútur. Hvernig verður þetta í monsooon? Mig grunar að gatnakerfið hérna leggist á hliðina því það bólar lítið á holræsum, amk. holræsum sem virka.

3 ummæli:

Unknown sagði...

Hæ,hæ
Monsoon rigningin er sennilega ástæðan fyrir því hversu rosalega háar gangstéttabrúnirnar voru þegar ég kom til Delhi. Verð að viðurkenna að tilhugsunin um þessar skítugu götur á kafi í bleytu var ekki mjög geðsleg. Að vísu er staðan hérna að niðurföll voru stífluð um allan bæ þegar það gerði asahláku um helgina, þ.a. okkar kerfi er nú ekki alveg að virka, allavega ekki alltaf ;)
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Gunna

Unknown sagði...

Suss, það gaf sig frárennslið frá blokkinni okkar í mikla frostinu um daginn og það var skítapollur á bílastæðinu...

En allavega - frábært að vera búin að finna bloggið! :D Kærar kveðjur til Indlands. Við erum að fara til Úganda og Rúanda á þriðjudaginn.

Ella sagði...

ohhh æði! Ég bið að heilsa górillunum:)

Það eru víst apar í hverfinu hjá mér en ég hef ekki séð þá. Leila sem býr í götunni okkar lenti í því að apamamma réðst á hana eftir að hún lokaði hurðinni óvart á ungann hennar;) Frekar spaugilegt, sé fyrir mér frönsku dömuna hlaupandi undan apamömmu í hefndarhug...