þriðjudagur, 27. nóvember 2007

Fjölgun

Hér á Indlandi er það hefð að konur flytja heim til mömmu sinnar þegar þær eru komnar 7 mánuði á leið. Þó svo þær þurfi að flytja á milli bæja og borga. Þær eiga barnið þar og eru hjá henni fyrstu mánuðina. Mamman dekrar við verðandi mömmuna og hjálpar henni með barnið, hljómar hreint ágætlega:) Hins vegar er margt annað sem hljómar ekki eins vel, til dæmis eru keisaraskurðir mun algengari en eðlilegar fæðingar og ástæðan er ekki skemmtileg; læknarnir fá meira borgað fyrir keisara en venjulega fæðingu. Hér fá konur 3 mánaða fæðingarorlof og það er nokkuð algengt að fyrirtæki borgi mánaðar fæðingarorlof fyrir feður en það er held ég breytilegt eftir fyrirtækjum. Hér eru orlofin sem sagt ekki frá ríkinu heldur fyrirtækjum. 3 mánaða fæðingarorlof gerir konum ekki auðveldara fyrir að vera áfram á vinnumarkaðinum eftir barneignir enda eru þær oft heimavinnandi eftir að þær eignast börn. Hins vegar koma ömmurnar oft inn í þetta svo konan geti unnið.
Eftir fæðingu kemur kona heim reglulega og þvær barninu og nuddar það. Börnin eru ekki sett ofan í bað eins og heima heldur situr konan á gólfinu með barnið á fótunum og þvær og nuddar barnið þannig. Ekki ólíkt því sem ég lærði í ungbarnanuddinu, nema hvað okkur fannst full óþægilegt að sitja í þessarri stellingu og 'íslenskuðum' þessa útgáfu af nuddi;)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ
Gott ad allt gengur vel. Vonandi ferðu ekki að eignast þarna þarna Ella, betra heima bara:) Æðisleg videoin af Mikael...hvernig væri ad setja líka inn video af mömmu og pabba:)(a.k.a. Ellu og Konna:)) Verðiði komin heim 17 des? Við Jan gistum hjá Völu þá nótt og það væri sku cool að við gætum get eitthvað skemmtilegt.
Fleiri video fleiri video fleiri video!!!
Luv Maren

Ella sagði...

Engin hætta á því að ég eignist barn hér í landi:) Er ekki svolítið egócentríst að setja inn video af sjálfum sér? En það er aldrei að vita.
Við komum heim 14. des og erum búin að taka þann 17. frá í hitting. Við vala vorum að spá í að það væri gaman að fara á jólahlaðborð ef þið væruð til. Verðum í bandi með það.

knus
ella