Ég er hrædd um að indverskur þrifnaður stæðist ekki kröfurnar hjá henni móður minni. Þar sem þetta er þriðji dagurinn heima þá hef ég haft nægan tíma til að fylgjast með liðinu þrífa íbúðina. Þess skal getið að á nýskúruðu gólfi þarf rétt að rölta í næsta herbergi til að verða svartur (ja.. grár) á fótunum. Eftir ítlarlegar greiningar á aðferðum og markmiðum undanfarinna daga þá er sápulykt=hreint hjá þeim; þetta fer svona fram:
Inn koma fimm strákar. Einn er verkstjóri (butlerinn) og gerir ekki neitt nema labba á milli og blaðra. Einn sópar, tveir fara í rúmin og einn skúrar. Það er sér deild sem sér um eldhúsið, það eru tvær konur (auðvitað). Skúringar fara þannig fram að viðkomandi labbar um með gulan þykkan og mjög sterkt lyktandi (=hreint) vökva og sullar um allt gólf, dreifir svo vel úr. Þá er allt orðið hreint. Þegar búið er að 'þrífa' þá labbar einn með ilmsprey um allt hús og spreyjar, spreyjar mikið, klárar næstum því brúsann. Við mikael vorum rúmlyggjandi í gær og ég féll næstum því í yfirlið af ilmefnunum (=hreinleikanum).
Á eftir kemur svo gaurinn sem gerir ekki neitt (minna en butlerinn) og spyr hvort allt sé nógu hreint. Við höfum reynt að panta mat af þessum sem gerir ekki neitt og það gerist ekki neitt. Hann er yfir ræstingunum.
Núna akkúrat eru inni hjá mér fimm fullvaxnir karlmenn að mæla fyrir veggfóðri. Þar af er einn með málband og hinir horfa á. Þetta er alveg dæmigert indverskt. Nei afsakið, einn mælir og einn skrifar niður. Hinir horfa á.
Dyrabjallan hringir hér örugglega 20 sinnum á dag. Og það er þegar þeir dingla, stundum koma þeir bara inn (eins gott að vera með hárið vel sett upp). Þeir byrja um klukkan sjö á morgnanna, Dingggggggg. Fyrsta daginn þá nenntum við ekki á fætur, þetta var allt of snemmt... best að sofa þetta af sér. Dinggggggg, hringir aftur, og aftur og á endanum fer Konni til dyra (þetta hlaut að vera áríðandi). Konni kom til baka með dagblaðið. Þeim er mjög annt um að maður sé vel uppfærður af fréttum hér á bæ. 5 mín seinna: Dinggggggg. ónei. og aftur, og aftur. Konni fer aftur til dyra: Eruð þið með þvott? Og klukkan er rétt rúmlega sjö. úfffff....
Ein krúttleg kona (úr eldhústeyminu auðvitað) stekkur stundum inn að kíkja á mikael, ekkert að dingla enda er mér svosum sama. Butlerinn okkar þurfti að draga hana út áðan;) Hún er voða sæt, heitir auria eða eitthvað svoleiðis.
Annars eru launin ekki merkileg hjá þessu fólki. Butlerinn er með 3000 rupies (4500 isk) og þrifstrákarnir 2200 rupies á mánuði. Butlerinn okkar er algjör töffari, er barþjónn í Mumbai og Góu til skiptis á milli þess að vera hér. Hann ætlar að gifta sig eftir þrjú ár.
Bílstjórinn okkar er með 10.000 rupies á mánuði (15000 isk) sem er bara gott miðað við þennan geira held ég. Hann heitir Surya og á tvö börn, strák og stelpu, 3 og 5 ára. Hann er ekkert að fíla indverska umferð; tvíhjól, þríhjól og fjórhjól (bílar) allt í sömu kösinni. Og svo beljurnar auðvitað, ekki má gleyma þeim.
Butlerinn okkar er að bíða eftir vegabréfi svo hann geti farið að ferðast, ég spurði hvert hann ætlaði en hann var ekki alveg að fylgja (hann er að æfa sig í enskunni). Ég spurði hvort hann ætlaði til Evrópu (oft gott að nefna staðhætti í stað þess að hafa spurninguna opna), hann spurði hvort Evrópa væri góð borg. Ég hló inni í mér, enda orðin nokkuð góð í því.
Jæja, vonandi er þetta síðasti dagurinn heima. Ég er að verða nokkuð góð en mikael greyjið er ennþá með Gullfoss og Geysi. Ældi yfir nýskúraðagólfið áðan, æ úff ég greyjið neiddist til að kalla á skúringarstrákinn aftur að skúra. Erfitt líf.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það er satt hjá þér Ella að ég gef þessum þrifnaði ekki háa einkunn en sennilega er fólkið að gera sitt besta. Skelfilega þessi sprey árátta, er ekki hissa þó ligtin hafi farið illa í ykkur. Það er greynilega gert í því þarna í landi að veita sem flestum atvinnu. Gott er að þú ert að hressast og vonandi verður Mikael búin að hrista þetta af sér um helgi. Hafið það sem best, mamma.
Skrifa ummæli