Við Mikael fórum út að leika í morgun eftir morgunmatinn sem hún Lakshmi eldaði handa okkur. Nýbreytni sem hún tók uppá um síðustu helgi, algerlega óumbeðin okkur til mikillar ánægju.
Við röltum nokkrar götur og enduðum í rólugarðinum að róla. Ég rak augun í mann um 35+, í röndóttri skyrtu, joggingbuxum og hlaupaskóm röltandi framhjá, svona frekar hratt og talandi í síman. Mér var ekki alveg ljóst hvort hann væri í morgunleikfimi eða hvort hann væri bara að flýta sér. Það að hann var að tala í símann ruglaði líka myndina.
Stuttu seinna labbaði hann aftur framhjá. Og aftur. Og aftur. Mér var nú orðið ljóst að þetta var morgunleikfimi. En alltaf talaði hann í símann.
Ég hef alltaf áhyggjur af heilsu bróður míns sem eins og margir, vinnur of mikið og hreyfir sig of lítið. Þarna er tækifærði Rósi bró, taka nokkur struns Daltúnið fram og til baka yfir morgunfundinum á morgnanna, eða bara sæbrautina. Sjáið þetta ekki fyrir ykkur? Svo slást kannski fleiri í hópinn, og götur fyllast af jakkafatamönnum og konum, í íþróttaskóm, talandi í símann.
Ég sé fyrir mér að stærri fyrirtæki myndu láta útbúa 'strunsganga' þar sem fólk gæti strunsað fram og til baka án þess að þurfa að klæða sig út á veturnar. Fólk gæti leitað til Japans þar sem fréttir hafa borist af öskurherbergjum og kariokee herbergjum innan fyrirtækja.
Ég er sannfærð um að þetta myndi skila sér. Losa um stressið á strunsinu, ná hjartslættinum aðeins upp, rúlla blóðinu nokkra hringi um æðarkerfi líkamans og losa svitann úr svitaholunum. Fara svo aftur að vinna.
Elín Elísabet Torfadóttir talar frá Hyderabad
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Góð hugmynd, ég mun sjá til þess að bróðir þinn lesi þetta blogg en lofa ekki að jakkaklæddir menn á Íslandi fari að klæðast íþróttaskóm;)
Takk fyrir það Sigríður.
Nei, þeir eru sennilega of meðvitaðir um útlitið fyrir íþróttaskó við jakkafötin. Kannski Nike, jafnvel Boss eða Armani sæi sér leik á borði og færi að framleiða íþróttaskó sem litu nákvæmlega út eins og jakkafataskórnir.
Skrifa ummæli