Þá erum við loksins búin að bóka fríið okkar. Við fljúgum út 12. júlí til Singapúr, ætlum að anda að okkur ferskleikanum, hreinleikanum og smartheitunum í nokkra daga. Þaðan förum við til Beijing til að skoða kínamúrinn, torg hins himneska friðar og fleira. Ég efast ekki umm að við finnum nóg að dunda okkur við þar.
Frá Beijing fljúgum við aftur til Singapúr og förum þaðan til Tioman í Malasíu. Tioman er lítil paradísareyja nálægt Singapúr, hluti af myndinni South Pacific var tekin þarna ef þið hafið séð hana. Ró og friður, pálmatré, frábært dýralíf á landi og sjó. Hver þarf meira?
Svo það verða þrjú ný lönd á kortið hjá Konna og Mikael Tuma á þessum tveim vikum, eitt hjá mér því ég hef komið bæði til Singapúr og Tioman í Malasíu. Fyrir tæplega tíu árum síðan fór ég þangað með líffræðinni í meiriháttarferð, við fórum þá til Singapúr, Malasíu og Indonesíu. Afhverju að þræða sömu staðina aftur? Afhverju ekki, Singapúr er frábær til að stoppa í nokkra daga, og Tioman er hreint yndi ef manni langar í rólegt strandalíf á milli pálmatrjánna. Og hvað gerir maður ekki fyrir Konna;) Það er búinn að vera brandari hjá okkur hérna úti að hann vill alltaf fara á staði sem ég hef séð eða er að fara að sjá.
Þessi ferð verður alveg frábær, smá saga og menning fyrir Konna, dýralíf fyrir Ellu, strönd fyrir Mikael og verslun, veitingastaðir og kaffihús fyrir alla.
Það verður frekar fyndið fyrir Mikael að eiga allar þessar myndir af sér á merkum stöðum um allan heim, sérlega á kínamúrnum. Eftir þessa ferð hefur hann ferðast um þrjár heimsálfur og níu landa áður en hann verður tveggja ára. Fyrir þá sem hafa séð myndina Amelie, þá datt mér í hug garðálfurinn... :) Fyrir þá sem ekki hafa séð Amelie, þá legg ég til að þið rennið við á leigunni í kvöld og grípið hana með.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Það er aldeilis spennandi ferðalag framundan hjá ykkur :)
Já Mikael verður orðinn verulega reyndur í ferðalögum þegar hann flytur heim og nær svo því að verða tveggja ára.
Kveðja til ykkar allra.
Gunna
Þið verðið að afla frekari sannana fyrir hann - hver veit nema þessar myndir séu allar teknar með green screen?
Knús, Brynja
hahaha hér eftir mun ég aldrei hugsa til Mikaels nema að detta í hug garðálfur :D Ég væri nú alveg til í að vera með ykkur á ferðalögum, hljómar afar spennandi, láttu mig vita ef þig vantar AuPair með BA í fjölmiðlafræði ;)
Skrifa ummæli