þriðjudagur, 20. nóvember 2007

Politik

Ég ætla að gerast svö brött að blogga um pólitík þó svo ég sé ópólitíski armurinn í fjölskyldunni. Það er búið að skreyta borgina alla með fánum, ljósum og skiltum (já enn fleiri skiltum) því um helgina verður Congress flokkurinn með ráðstefnu hér í borg og auk þess verður stytta af Indhiru Gandhi afhjúpuð í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá fæðingu hennar. Auk þess hafa verið pólitískir útifundir sem skapa enn meiri gleði í umferðinni. Í síðustu viku var útifundur hjá 'bleika flokknum' (veit ekki hvað hann gerir en fánarnir voru bleikir;), þeir eru að krefjast þess að Hyderabad verði sjálfstætt fylki. Ekki mjög líklegt né gáfulegt samvkæmt vinnufélugum mínum.

Annars var ég að reyna að spjalla við bílstjórann minn í gær um Gandhi fjölskylduna og atburðina um næstu helgi. Hann þuldi upp fyrir mig öll fjölskyldutengsl Gandhi fjölskyldunnar og svo kom þetta snilldarsamtal:
you like Indhira Gandi ma'm?
well I have never met her, but I assume so. Is the Gandhi family popular in India?
sorry madam?
Gandhi - popular - India? (það hjálpar stundum að segja bara orðin sem skipta máli)
ahhhh yes, India very popular madam, India popular.

Ég hló inní mér.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehehe, það lítur út fyrir að þið þurfið að læra eitthvað í indversku. En jú það er málið að segja bara þau orð sem máli skipta og ég rak mig á það að þegar ég var að vinna með Ungverjum (sem töluðu reyndar ágæta ensku) þá var ég allt í einu farin að nota orðaröð sem ekki passar á ensku en gengur fínt á Ungversku, sem sagt hermdi eftir þeim til að gera mig skiljanlegri - pínu ruglað að tala meðvitað lélegri ensku en maður getur hihi.

luv,
Þórgunnur.

Ella sagði...

Já það er alveg málið, það er sennilega verst að manni hrakar all verulega í enskunni. Svo er reyndar frekar fyndið þegar maður lendir svo á vel enskumælandi aðila og maður talar sjálfur default vondu enskuna og hann skilur ekki orð!
knus
ella

Helga sagði...

Þá er bara málið að vita allt um Indhiru Gandhi svo þú getir spjallað við fólkið.... þú verður farin að tala Hindua-ensku um jólin.
Baráttukveðja
mamma.