Ótrúlegt en satt, þetta hafðist að lokum! Með hjálp góðrar fjölskyldu og vina tókst að pakka, flytja og koma litlu fjölskyldunni í flugið án áfalla. Takk fyrir hjálpina öll sömul!
Við erum stödd á Schiphol og eigum flug á hádegi á morgun til Hyderabad. Skrítið! Eftir geðveiki undanfarinna daga, og fyrir geðveiki næstu daga þá er gott að stoppa hér í sólarhring, sofa aðeins og borða góða steik og skola því niður með góðu rauðvíni. Hver veit hvað við fáum að borða næstu daga;)
Mikael Tumi greyjið er búinn að vera með gullfoss og geysi undanfarna daga og hef ég malaríulyfin sterklega grunuð. Hugsanlegar aukaverkanir eru ógleði, uppköst, þunglyndi, rugl.... Svo ef ég verð í ruglinu, þá vitið hverju er um að kenna.
Við lendum eftir miðnætti á aðfaranótt laugardags og erum búin að bóka okkur gistiheimili í Jublee Hills fyrstu vikurnar en vonandi tekur ekki langan tíma að finna okkur íbúð. Á mánudaginn tekur svo við vinnan. Hvað í andskotanum ætlar Ella svo að gera í Indlandi? Góð spurning. Calidris er með tíu manna hóp í vinnu á Indlandi, þar af eru tveir í Bangalore og restin í Hyderabad. Ég verð sem sagt að vinna með þeim næstu mánuðina.
Konni er að berjast við Mikael í rúminu, grey litla orðinn smá ringlaður á þessum þvælingi. Góða nóttina góða fólk, ég mun tala næst frá Indlandi.
Ella
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Góða ferð og gangi ykkur vel. Þetta verður mikið ævintýri og áskorun um leið. En með góðri samstöðu þá á ykkur eftir að vegna vel. Á Indlandi gildir að: "Þolinmæði þrautir vinnur allar"
Bestu kveðjur frá Indiana US.
Takk fyrir það pabbi minn. Við þurftum á þolinmæðinni að halda strax við lendingu, það tók indverskan einn og hálfan tíma að fá töskurnar. Þeir eru ekkert að flýta sér þessar elskur;)
hæhó. Góða ferð fjölskylda, þetta er súper spennó. Vonandi fá ekki allir ælu og uppkastaveiina þó það sé við því búandi svona meðan er verið að venjast matnum og sona...
Hvaðan hefur Mikael þesa danshæfileika:) Ella hefuru verið að kenna honum tökin:)
Þar til seinna.
Love Maren
Ótrúlegir danstaktar ekki satt:) Bumbudansinn hefur borgað sig á sínum tíma;)
knus
ella
ho ho ho ... við hérna í Rauðalæknum bíðum spennt eftir því að heyra frá ykkur indíaförum. Endilega að hafa samband sem fyrst! Vonandi er allt búið að ganga vel og allir hraustir og kátir. Eruð þið búin að finna íbúð, ráða nuddara og svona þetta helsta?
Bestu kveðjur, Vala og co.
jæja, hvað er svo að frétta? Nú er maður spenntur að heyra hvernig hefur gengið eftir að til Indlands kom. Vona að allt hafi gengið vel og að þið hafið það öll gott.
kv,
Þórgunnur.
Skrifa ummæli