Uppáhaldsatvinnugreinin í dag eru rafmagnssnúruhaldararnir. Við sáum mann að slá flöt í garði einum, hann var með rafmagnssláttuvél en ekki bensín eins og heima. Það væri ekki frásögu færandi nema að hann var með mann í vinnu við að halda á snúrunni og sjá til þess að hún þvældist ekki fyrir.
Svona eru mikið af störfum í Indlandi sem okkur þættu svolítið skrítin. Vinnuaflið er svo ódýrt hér að það er ekki mikil hvatning á því að finna sniðugar lausnir á málunum sem spara vinnu.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hæ hæ
Gaman að heyra frá ykkur og til hamingju með að húsasamningarnir tókust. Vona að þið verðið ánægð með slotið :)
kv. Gunna
Hahah, þetta er bara snilld! Minnir mig á gaurana sem unnu við að leigja út vigt á göngugötunum )
Skrifa ummæli