mánudagur, 12. nóvember 2007

Við erum a lifi

Eftir langt og hreint ekkert spes ferðalag frá Amsterdam komum við á gistiheimilið um miðja nótt að indverskum tíma. Oft hefur maður kvartað yfir icelandair vélunun á evrópuleiðum en KLM er verra og það í 8 klst (rúmlega) flugi! (ekki samt hætta við að koma í heimsókn;)

Þessa þrjá daga sem við höfum verið hér höfum við notað aðallega í þvæling til að finna okkur íbúð. Konni og Mikael eiga eftir að deyja úr leiðindum hér á gistiheimilinu til lengdar, svo verið nú góð við hann Konna á næstunni, senda honum falleg sms og svona:)

Nokkrar hugleiðingar:
  • Indverjar nota ekki barnabílstóla, þeir horfa yfirleitt furðulega á hann og skella honum svo í skottið.

  • Mac Donalds á indlandi bjóða aðeins upp á kjúklinga og fiskborgara

  • Hjálmlaus lögga á mótorhjóli að tala í símann... only in India

  • Hi-tech, modern, luxury, fully... orð með aðra merkingu á Indlandi en á Íslandi

  • moldargötur, rafmagnsnúruflækjur, skiltahrúgur, rusl út um allt, óskipulag, þvaga ... og okkur dettur í hug að láta þessa þjóð smíð fyrir sig hugbúnað? Athyglisvert.
  • 6 ummæli:

    Unknown sagði...

    Mikið er gott að heyra frá ykkur Ella mín. Já Indland er held ég alveg spes í flestu samhengi. Vona að þið finnið góða íbúð fljótt og vel. Þeir feðgar mega ekki krepera úr leiðindum meðan þú ferð að koma skikki á okkar mál á Indlandi :)
    Vona að þið hafið það gott. Bið kærlega að heilsa þeim feðgum.
    Gunna

    Nafnlaus sagði...

    já gott er að heyra að íslendingarnir séu á lífi :-) Það tekur smá tíma að aðlagast og svo allt í einu verðið þið dottin í rútínu. Látið ekki deigan síga kæru víkingar - áfram ÍSLAND hvar sem er í heiminum ;-)

    Verið svo dugleg að setja inn fréttir fyrir hversdagsleiða heimalinga á klakanum.

    Nafnlaus sagði...

    já anonymous hér fyrir ofan er semsagt hún ÉG eða Þórgunnur, hehe.

    Unknown sagði...

    KLM - gleymdi ég vara þig við KLM - aldrei að fljúga með þeim - sagði einhver sem ég þekki :)
    Já nú kemur þú bara skikki á alla þjóðina - ekki bara þetta dúsín sem vinnur fyrir okkur. Þú ferð létt með það :) Þá verður til Indland fyrir og eftir Ellu.

    Ella sagði...

    Takk fyrir kveðjurnar góða fólk:) Og já Geir nú veit ég þetta með KLM... ég neiðist samt til að fljúga heim með þeim en við höfum recovery stað heima hjá tengdó eftir það flug.
    Við höfum það alveg ágætt, þetta er allt að koma. Fundum eina fína íbúð í Malaysian township sem er svona verndað umhverfi;) Hlutirnir taka aðeins meiri tíma hér en heima en þeir eru afar liðlegir að hjálpa okkur hérna á skrifstofunni.
    Knus
    Ella

    Nafnlaus sagði...

    Er ekki alveg hægt að treysta á að þið reddið manni eiginhandaráritun þegar þið hittið þessar stjörnur?

    http://youtube.com/watch?v=ZA1NoOOoaNw