fimmtudagur, 1. nóvember 2007

Vika í brottför....tikkk,takkk

Þetta er að verða ískyggilega raunverulegu staðreynd að flytjast búferlum hinum megin á hnöttinn...bara í næstu viku, takk fyrir.
Fyrir rúmlega sjö árum síðan var ég ásamt vinum í bakpokaferðalagi á Indlandi, Nepal og Tailandi. Ef einhver hefði sagt við mig þá að ég ætti eftir að flytja til Indlands þá hefði ég hlegið að honum, hrópað og grýtt. Eins gott að ég gerði það ekki...

Ágætt í stöðunni að fara yfir tékklistann:
byrjaður að pakka niður: nei,
byrjaður að setja dót í kassa: nei,
búinn að selja bílinn: nei
skipta um lögheimili: nei
finna þjónustufólk: nei

Hva, nægur tími til stefnu... tökum íslensku leiðina...þetta reddast allt saman! Erum allavega komin með flugfar, visa, bólusetningu og íbúð (tímabundið). Neste station: Jubilee Hills, Hyderabad.


Konni

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Isss ef þú lærðir eitthvað í stjórnmálafræðinni þá hlýtur það nú að hafa verið að gera hlutina á seinustu stundu;) Annars er ég að gera ráð fyrir því að þið tollið þarna í heilt ár svo ég geti komið við hjá ykkur OG fengið gistingu og góða þjónustu, því bakpokaferðalagið mitt hefst ekki fyrr en í september 2008 og byrjar einmitt á Indlandi! Þú verður væntanlega orðin sleipur í hindí þá...góða ferð öll sömul og gangi ykkur vel:)

Konni, Ella og Mikael Tumi sagði...

Já mikið rétt, maður lærir í stjórnmálafræðinni að redda sér á síðustu stundu. Ef ég verð ennþá á Indlandi á þessum tíma þá ertu meira en velkomin Eyrún og þú færð að sjálfsögðu gestanuddara til eigin afnota.
Konni