fimmtudagur, 17. janúar 2008
Af mönnum og músum
Hann Ramakrishna er skuggi í hópnum. Ég var að hjálpa honum í gær og var að missa vitið á músinni hanns. Hann er ekki með skroll-mús sem er pínu pirrandi þegar maður ætlar að skrolla yfir kóðann. Ég spurði hann afhverju í ósköpunum hann væri ekki með skrollmús, þetta væri svo svakalega 2007 (ja eiginlega meira 1987 en ég er svo kurteis). Hann var búinn að gefast upp á því að fá nýja frá IT deildinni, hann gafst endanlega upp þegar þeir sögðu honum að það væri ekki hægt að fá skrollmús við IBM vél. Velkomin á 21. öldina.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Sársaukafullt verð ég að segja, alltaf gaman af þessum indverjasögum !
Víða er þó pottur brotinn. Ég heyrði ungling sem var að afgreiða í Apple búðinni á íslandi babla út úr sér: "já og tölvuskjár sem keyptur er á íslandi virkar víst ekki í Ástralíu af því að segulsviðið þar er öfugsnúið, þú veist svona eins og vatnið sem snýst í öfuga átt eins og þegar halað er í klósettið" !!!
Gaman að þessu.
Hils/Lína
:)
Ekki eru flestir með túbuskjái líka?
Kveðja héðan úr fannferginu
Þröstur
Jú, túbuskjáir eru mjög algengir þó svo einn og einn flatur sjáist hér á borðum.
Ég er örugglega mjög pirrandi hérna með fína makkann minn, þráðlausa lyklaborðið og músina;)
Skrifa ummæli