fimmtudagur, 10. janúar 2008
Uppáhaldsstarfið
Uppáhaldsstarfið mitt í dag er kaffistrákurinn í vinnunni. Uppi í matsal er kaffisjálfsali þar sem hægt er að fá expresso, latte ofl. Það er maður sem sér um að setja bollana undir og ýta á rétta takka. Þetta virkar svo þannig að ég stend við hliðina á honum og segi honum hvaða takka hann á að ýta á:) Æðislegt. Sjáið þið ekki fyrir ykkur að hafa einn vinnandi við kaffivélina heima í Calidris? En því miður gerir þetta kaffið ekkert betra.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Mikið er gaman að geta lesið aftur pistla frá þér/ykkur. Búin að bíða spennt eftir sögum frá Indlandi :) Held samt að það verði bið á því að við fáum okkur mann til að standa við kaffivélina (hehe).
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Gunna
Já, það væri nú aldeilis munaður að hafa einhvern sem ýtir á takkann fyrir mann þegar maður ætlar að fá sér kaffi. Myndi hann líka taka bollann út úr skápnum?... ;-)
Hæ og gleðilegt ár ! Þetta eru merkilegustu störf sem ég hef heyrt um, "rafmagnssnúruhaldari" og "expressokönnu þjónn". Hvaða expressovél er þetta annars. Er hægt að kaupa svona combo ?
Gangi ykkur vel þarna hinumegin á nýju ári.
Kram,
Lína
Takk fyrir Lína mín og nýjarskveðjur til ykkar í Vancouver! Svona þér að segja og öllum öðrum sem lesa þetta þá er gestaherbergið tilbúið!
Og unnur já hann sækir bollana líka, alveg ótrúlega fjölhæfur:)
Sé þig í huganum að bíða eftir því að drengurinn framkvæmi skipanir þínar og rétti þér síðan bollann með rjúkandi kaffinu. Þetta er sennilega afar merkilegt starf fyrir hann og ber því að sína því virðingu.
Góða helgi Ella mín og gangi ykkur vel.
Skrifa ummæli