þriðjudagur, 22. janúar 2008

Starfsmannastjóri óskast

Jibbíí.....þá er strákurinn kominn í netsamband, þökk sé nágrannanum sem hefur ekki vit á því að læsa þráðlausa netinu sínu...hehehe. Kannski ég baki köku handa honum í þakkarskyni, nei annar gætu það orðið nokkuð margar kökur þar sem ég hef ekki hugmynd hvaða nágranni er bjóða mér upp á frítt samband við umheiminn. Hver segir svo að það sé ekkert til sem heitir ókeypis hádegisverður.

Það er nánast fullt starf þessa dagana að sjá um starfsfólkið okkar, svona sérstaklega þegar þrifmæðgurnar gera ítrekaða uppreisn á heimilisstörfin. Fyrst neituðu þær að þrífa á laugardögum og svo neituðu þær að vaska upp....ja hérna. Tvennt var í stöðunni, annað hvort að kaupa uppþvottavél fyrir tugiþúsunda eða gefa mæðgunum djús og tæplega 700 krónur í kauphækkun á mánuði. Ég valdi síðari kostinn. Þær lofuðu líka að gera ekki aðra uppreisn. Þrifmæðgurnar eru góðar saman, líta alveg eins út og samanlagt rétt slaga þær í tveggja metra hæð. Þrifdóttirin er aðeins 16 ára gömul og verður gift með vorinu, efast um að við verðum boðin í brúðkaupið.

Nú rétt í þessu var garðyrkjumaðurinn að láta sjá sig eftir að hafa verið týndur í meira en viku. Sem betur fer gat barnfóstran túlkað öll samskiptin, annars hefði hann örugglega horfið aftur. Þá er allt starfsfólkið komið á ról, nema mig vantar einhvern til þess að hafa yfirumsjón með daglegum verkefnum, eins konar starfsmannastjóra. Einhver þarf líka að skipuleggja árshátíðina fyrir vinnufólkið. Ég var nú næstum búinn að hóta þrifmæðgunum að aflýsa árshátíðinni eftir uppsteyt þeirra. Ég ætti kannski að bjóða verkefnið út.

Konni

3 ummæli:

Helga sagði...

Gott fyrir þig að vera komin í samband við umheiminn, vonandi færðu að vera´tengdur hjá nágrannanum þar til þið fáið ykkar tengingu. Fullt starf fyrir þig að halda utanum starfsfólkið og semja við það, vonandi hefur garðyrkjumaðurinn gróðursett á réttan stað.
Gangi þér vel, tengdó.

Nafnlaus sagði...

Það fer þá ekki til einskis þessi tími sem þú ert heima Konni minn. Þú getur auðveldlega sett þetta á ferilskrána, forstjóri 8 manna grasrótarfyrirtækis í Indlandi.

Ég er allavega hætt að hafa nokkuð samviskubit yfir stelpunni sem kemur einu sinni í viku til að þrífa - þó ég borgi reyndar örugglega töluvert meira fyrir það en þið fyrir allt ykkar starfsfólk.

Nafnlaus sagði...

Geturu ekki bara keðjað mæðgurnar við eldhúsvegginn og tekið af þeim máltíð dagsins ef þær klára ekki uppvaskið...