Ég hef oft sagt ykkur frá hinni frábæru Suryensku, þ.e. enskunni hans Surya enda höfum við átt mörg frábær samtölin enda eyðum við töluverðum tíma saman í bílnum við tvö.
Ég er alltaf að reyna að kenna honum betri ensku, en stend mig alltaf að því að tala sömu einföldu enskuna og hann til að einfalda málið því of mörg auka orð eins og 'there are', 'it is' osfrv gera hana bara erfiðari til skilnings.
Film Nagar Temple Road er gata sem ég keyri á hverjum degi á leiðinni heim. Vegurinn eins og margir aðrir í Hyderabad er illa farinn og búinn að vera hálfkláraður síðan við komum. Surya var að kvarta undan þessu í gær: "All roads in Hyderabad good no!". Og það er svo dásamlegt hvernig hann segir þetta með alveg extra áherslu á no! með smá nefhljóði í o-inu. Svo fylgdi "all roads in india good no!" :)
Annars er rok og rigning úti. Hressandi!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Óska ykkur til hamingju með rokið og rigninguna. Ljúft í hitastækjunni. Grf að þið hafið þá farið út og velt ykkur upp úr dögginni á Jónsmessunótt.
Knús frá Vancovuer, BC. /L
Skrifa ummæli