Ég þarf að segja ykkur frá Góu seinna eða Grússlandi eins og ég vill frekar kalla hana því þarna var nánast meira af rússum en indverjum. Konni kannski segir ykkur frá því.
Setning ferðarinnar var sögð af leigubílstjóra númer tvö sem kom að hótelinu þegar við vorum á leiðinni heim. Bíll númer eitt var bílbeltalaus eins og er all algengt og við þverneituðum að ferðast í honum. Þessi var með bílbelti en of lítill fyrir allt draslið og okkur með. Þar að auki rukkaði hann alltof hátt fyrir ferðina..
Konni: "how much?"
Bílstj: "1000 rupies sir"
Konni: "no no, 800, it says 800"
Bílstj.: "but this is a special car sir"
Konni: "what?" "what is so special about it?"
Bílstj: "It has seatbelts sir" "special car"
......
Hvað skal segja.....
Á skrifstofunni í morgun eru vinir mínir nokkrir búnir að vera mjög huggandi um útlit mitt, "you look bad", "your eyes have gone in", "you didnt sleep well?" mín sem sagt fékk matareytrun í fyrradag eina ferðina enn.
En það besta kom frá Soniu: "what is this?" "those spots?" og benti á hökuna mjög áhyggjufull. Eftir nokkra rannsókn komst ég að því að hún var að meina freknurnar;)
föstudagur, 22. febrúar 2008
föstudagur, 15. febrúar 2008
Valentínusardagurinn
Hann er víst í dag. Til hamingju hjartaknúsarar um allan heim. Indverjar virðast halda mikið uppá þennan dag, enda eru þeir afskaplega rómantískir. Rómantískir og dramatískir. Ég er ekki viss um þó að indverskir karlmenn eldi handa konunni sinni í kvöld en einhversstaðar verða mörkin að liggja;)

Mér leiddist svo í vinnunni í morgun og saknaði vinnufélaganna heima á fróni. Svo fór ég í mat og þegar ég kom aftur þá voru nágrannar mínir búnir að skreita svona líka svakalega vel í tilefni dagsins. Það er skreitingarkeppni í dag. Flottasti básinn fær verðlaun, hvað það verður veit enginn... kannski masala dosa? Þeir allavega björguðu deginum og brosið er aftur komið á smettið.
Talandi um Dosa þá fór ég á æðislegan stað í gær (og í fyrradag). Hann heitir 99 varieties of Dosa. Dosa er pönnukakan munið þið, eins og indian style Crépes. Ég er búin að smakka tvær gerðir og það eru þá 97 eftir. Ég er einni dosu á undan Konna en hann er bara búinn að smakka 1. 2-1 fyrir Ellu (þetta minnir á badmintonið, það skal reportað að ég tók karlinn í bakaríið um daginn;)
En njótið dagsins, hvort sem þið ætlið að halda upp á hann eða ekki. Ég fékk hjartalaga blöðru sem Konni keypti fyrir utan hjá afa í gær. Hún endaði hjá Mikael sem fannst hún hreint alveg æði.
Ella
ps. Erum að fara til Góu á morgun. Get ekki beðið! Leila og Rob eru að gifta sig á ströndinni þar á þriðjudaginn og mín er búin að kaupa sér indverskan kjól fyrir tilefnið, gyllt öklaband og gullsandala.

mánudagur, 11. febrúar 2008
Veðurfréttir
Eins og þið vitið þá er vinsælt að tala um veðrið á íslandi. Það er yfirleitt lítið að frétta af veðrinu hér, það er svolítið mis heitt, stundum skýjað og stundum ekki en yfirleitt hiti um 25-30 gráður.
En..... í morgun rigndi! Það er allt á floti á götunum en samt rigndi bara í um 10 mínútur. Hvernig verður þetta í monsooon? Mig grunar að gatnakerfið hérna leggist á hliðina því það bólar lítið á holræsum, amk. holræsum sem virka.

fimmtudagur, 7. febrúar 2008
Starfsmaður í þjálfun og annar út á plani
Hvað er að gerast á klakanum? VETUR í allri sinni dýrð...og við að missa af öllum herlegheitunum. Það er nú líka vetur hjá okkur þessa dagana, sá nokkur ský í morgun. Veðurspáin gerir líka ráð fyrir því að hitastigið detti niður í 25-26 gráður á morgun...burrr. Eina leiðin til þess að fá snefil af almennilegum kulda er að stinga hausnum inn í frysti á hálftíma fresti. Gafst fljótlega upp á því. Hér kvíða menn komandi sumri og hvetja alla til að njóta vetursins á meðan hann varir....eitthvað öfugt við það sem maður þekkir úr sínum heimagarði.
En þá að máli málanna
Bílstjórinn og hans frú hafa búið hjá okkur síðustu 10 daga, réttara sagt fengu smá afdrep í hundakofanum sem er sirka helmingi minna að flatarmáli en leikherbergi Mikaels. En Ella ákvað að henda þeim út í gær....greyin, það er dýrt að vera fátækur. Í sárabætur ákváðum við að bæta konu bílstjórans á starfsmannalistann, hví ekki....vantar alltaf meira starfsfólk það var líka laus staða í helgarþrifum. Það verður léttir að losna við þau leiðindi. Nú fyrst við vorum að uppfæra starfsmannamálin þá þótti okkur tilvalið að ráða til okkar straujara...The Iron-Man, kostar heilar fimm krónur að strauja eina flík.....hverri krónu virði fram og aftur. Eftir síðasta starfsmannafund hef ég eiginlega misst tölu á því hvað margir vinna við að þjónusta rassgatið á okkur...alla vega 6 manns. Hvernig í and...fórum við að því að hafa engann starfsmann áður fyrr. Næsta á dagskrá er að setja starfsmannamálin í excel skjal. Án þeirra væri ég ekki að skrifa BA-ritgerð, spila tennis, golf og badminton. Ég skal borga starfmannasjóðinn.
Tennistíminn okkar féll niður í dag, ástæðan; allir tennisboltarnir týndust fyrir nokkrum dögum síðan....Aðeins á Indlandi er það mögulegt og kemur hreinlega ekki á óvart! Við höfðum sent Surya (bílstjórann) heim og þurftum því að labba heim, bæði tvö í glænýjum hvítum tennisskóm þrammandi í gegnum mannmergðina og fátæktarhverfi með nýju tennisspaðana okkar.....þvílíkt colonial pakk.
Konni

Bangalore, matur => bumbur
Bangalore er skemmtileg borg. Töluvert hreinni, grænni og nútímalegri en Hyderabad. Það er mikill IT bransi þarna og meðal annars sá ég torg merkt Sonata en Sonata sér að viðhalda því. Mér fannst líka maturinn betri en það er sennilega líka útaf því að ég var alltaf með Ravi ig VJey í að velja ofan í mig það besta af matseðlinum. Helstu uppgötvanirnar eru Idly og Dosa sem er algengur morgunmatur í Indlandi. Idly er hrísgrjónakaka sem maður dýfir ofan í hvíta (sterka) og rauð (sterka) sósu. Dosa er pönnukaka sem er líka díft ofan í hvíta og rauða sósu. Masala Dosa er svo Dosa með kartöflurétt inni, svakalega gott.
Ravi og VJey buðu okkur í mat á sunnudagskvöldið svo við gætum bragðað heimalagaða mat. Í matinn var Dahl, hrísgrjón og Parata sem er chabatti fyllt með kartöflurétt. Alveg hrikalega gott. Almennt á indlandi er reglan sú að á norður indlandi borða menn brauð eins og Roti, Chabatti, Parata, Polka og Naan með matnum en á suður indlandi borða þeir hrísgrjón og meiri hrísgrjón. Þeir gera þetta ofugt í Karnataka sem er fylkið sem Bangalore er í, þar eru þeir miklar brauðætur en í Hyderabad sníst lífið um hrísrgrjón. Í Bangalore fá þau sér hrísgrjón eftir matinn til að fullkomna máltíðina;)
Við erum öll komin með bumbu af öllu þessu brauð, hrísgrjóna og dahl-áti. Olíur eru líka mikið notaðar í matargerð svo eitt lag af olíu er komið framan á vömbina. Ég dró fram æfingardýnu og nú dugar ekki annað en að gera magaæfingar á hverjum morgni.

Samkynhneigð á Indlandi
Við áttum mjög góða helgi í Bangalore með þeim Ravindra og Vjey (veit ekki alveg hvernig það er skrifað, en hljómar Vee-Jey, sem sagt konan hans Ravindra). Ravindra er að vinna fyrir okkur í Bangalore og er mjög fínn strákur. Þau hjónin hentust með okkur borgina þvera og endilanga alla helgina og voru alveg frábær.
Talið barst að samkynhnegð á sunnudaginn. Ég veit ekki alveg hvernig það kom til því ég var hjá mr. Gustafsberg en umræðurnar voru áhugaverðar. Það voru aðallega spurningarnar sem voru áhugaverðar sem komu frá þeim. Eins og.. fá samkynhnegðir vinnu á íslandi? Fá þeir sömu laun? Fá þeir að vinna með öðru fólki? Er komið fram við þau eins og annað fólk?
Þau höfðu aldrei þekkt samkynhnegðan mann né konu að eigin sögn en að því er mér skildist þá lenda þeir helst í betli þar sem þeir fá enga vinnu og eru útskúfaðir úr samfélaginu. Það er sem sagt ekki litið á þetta fólk fögrum augum. Þetta er sorglegt en eins og með margt annað hérna þá á þetta eftir að breytast á komandi árum. Vonandi.
Svona til að leggja mitt á vogaskálranar þá sagi ég þeim nú að ég þekkti nokkra homma og þeir væru bestu skinn;)
Ég þekki ekki alveg hvernig þetta er í Mumbai en mér þykir líklegt að þetta sé aðeins öðruvísi þar, hún er einna nútímalegust af borgunum hér í Indlandi.

fimmtudagur, 31. janúar 2008
Helgarferð
Fjölskyldan ætlar að leggja borg undir fót og vera í Bangalore um helgina. Ef þú varst búin að skipuleggja það að kíkja í kaffi þá bið ég þig vinsamlegast ekki að hætta við heldur bara fresta því fram á næstu helgi. Annars verður Surya heima og tekur á móti gestum. Það veitir ekki að hafa starfsmann á fullum launum við það, allir þessir gestir sei sei.
miðvikudagur, 30. janúar 2008
Kóloníulífið
Það er ekki hægt að kvarta undan því að koma heim úr vinnunni á daginn og Mikael Tumi er heima sæll og glaður og barnfóstran búin að dekra hann allan daginn. Hún eldar fyrir hann á hverjum degi, Dahl, hrísgrjón, baunir og soðið grænmeti. Stundum bíður heil máltíð þegar ég kem heim og er það yfirleitt Dahl ásamt chabatta og einhverju gumsi og hrísgrjónum auðvitað. Hann dafnar vel í þessu dekri strákurinn og er töluvert orkumeiri seinnipartinn en þegar hann var búinn að vera á leikskólanum allan daginn. Það er ekki annað að sjá en að hann sé hamingjusamur með líf sitt í Hvísldalnum, svo er hann víst búinn að eignast vin sem hann leikur við á leikvellinum neðar í götunni.
Svo er auðvitað búið að þrífa húsið og þvo þvottinn þegar ég kem heim. Þrifmæðgurnar standa sig eins og hetjur eftir að þær fengu launahækkun og loforð um djús. Það kom reyndar í ljós að Leila var ekkert að gefa þeim djús, en þær meiga svosum alveg fá djús. Konni sér um þvottinn á milli þess að leita að golfsetti og skrifa ritgerð og stendur sig ekkert smá vel verð ég að segja. Metrómaður.
Við fórum í fyrsta tímann í tennis í gær. Það er tennisvöllur uppi á hæðinni fyrr ofan Hvísldal. Það var alveg frábært að spila í seinnipartssólinni með einkakennara auðvitað og lítinn strák að sækja boltana. ohhh kóloníulífið. Kennarinn er fínn, talar ekki mikla ensku en bætir það upp með líkamsmáli. Í gær fórum við í fimm mismunandi aðferðir við að slá í boltann og ég verð að segja að ég stóð mig með príði. Surya beið og horfði á á meðan og Mamatha var heima með Mikael. Svona er kóloníulífið;) Fólk úr hverfinu hópaðist að til að horfa á þetta hvíta pakk munda spaðann. Ég er ánægð með þennan völl, hann er mjög lócal, ekki í einhverjum fínum klúbb heldur bara á skólalóðinni í hverfinu svo við komumst aðeins í snert við Indland. Þegar ég eyði virku dögunum í vinnunni og um helgar reynum við að halda Mikael á frekar vernduðum stöðum. Maður fer ekki beint með hann á markaðinn, það er of mikið af fólki og of mikið af athygli. Stefnan er reyndar sett á að skoða meira markaðina hérna og túristastaðina þar sem Mamatha getur haft mikael fram að kvöldmat. Já það er eitt sem er mikið frelsi, barnfóstran fer þegar ég kem heim og ég þarf ekki að vera mætt klukkan á slaginu hálf fimm að sækja Mikael. Við höfum það sem sagt ágætt, söknum vina, vinnufélaga og fjölskyldu auðvitað en það má leggja ýmislegt á sig fyrir kóloníulífið;) Hvenær ætlar þú að koma í heimsókn?

mánudagur, 28. janúar 2008
Republic Day
Á laugardaginn var 'Republic Day' í Indlandi en árið 1950 tók stjórnarskráin gildi og því er þetta mikilvægur dagur í lífi þjóðar. Á föstudaginn var 'ethnic dressing' dagur hér í Sonata, Sonia (einn skugginn) mætti í sarí þrátt fyrir miklar yfirlýsiingar um að það væri ekki hægt að vera í þessu. Sarí er þessi dæmigerði kvenklæðnaður sem amk. lægri stéttir bera dags daglega. Allar konur í þjónustustéttinni eru í sarí. Þetta er 5,5 metra langur efnisbútur sem er vafinn utan um mittið og svo restinni vippað yfir axlirnar og er afar óþægilegur búningur samkvæmt samstarfskonum mínum hér. Þið getið rétt ímyndað ykkur að þetta getur orðið þungt en mitt helsta áhyggjuefni er að þetta myndi detta allt saman í sundur á vandræðalegum stað. Svo er víst erfitt að labba í þessu. Þrátt fyrir þessar áhyggjur þá bera margar konur þetta hér með sóma.
Við misstum annars af skrúðgöngunni sem byrjaði víst hálfátta um morguninn á 'parade place' eins og hann Mohann orðaði það. Það er hér ekki svo langt frá vinnunni, sér staður fyrir skrúðgöngur.
Laugardagurinn var því 'dry day' í lífi þjóðar og er bannað að selja áfengi þennan dag. Samt er hægt að fá það (ölið sko) bakvið hús með smá álagi auðvitað fyrir viðvikið. Eins sannur íslendingur myndi gera þá hamstra indverjarnir áfengið bara daginn áður og sitja svo heima að svumbli um kvöldið. Sjálf keypti ég mitt öl hjá afa á föstudaginn en talandi um vínanda þá í tilefni bóndadagsins þá opnaði húsfrúin auðvitað indverskt hvítvín. Ég verð að segja að ég held að við vinkonurnar höfum staðið okkur betur en þetta í heimabrugginu í menntó. En ég ætla ekki að gefast upp og er komin með meðmæli með annarri tegund.
Annars vill afi alltaf að ég kaupi af honum viskí eða romm. Hann skilur ekkert í þessu bjórsvumbli.

þriðjudagur, 22. janúar 2008
Starfsmannastjóri óskast
Jibbíí.....þá er strákurinn kominn í netsamband, þökk sé nágrannanum sem hefur ekki vit á því að læsa þráðlausa netinu sínu...hehehe. Kannski ég baki köku handa honum í þakkarskyni, nei annar gætu það orðið nokkuð margar kökur þar sem ég hef ekki hugmynd hvaða nágranni er bjóða mér upp á frítt samband við umheiminn. Hver segir svo að það sé ekkert til sem heitir ókeypis hádegisverður.
Það er nánast fullt starf þessa dagana að sjá um starfsfólkið okkar, svona sérstaklega þegar þrifmæðgurnar gera ítrekaða uppreisn á heimilisstörfin. Fyrst neituðu þær að þrífa á laugardögum og svo neituðu þær að vaska upp....ja hérna. Tvennt var í stöðunni, annað hvort að kaupa uppþvottavél fyrir tugiþúsunda eða gefa mæðgunum djús og tæplega 700 krónur í kauphækkun á mánuði. Ég valdi síðari kostinn. Þær lofuðu líka að gera ekki aðra uppreisn. Þrifmæðgurnar eru góðar saman, líta alveg eins út og samanlagt rétt slaga þær í tveggja metra hæð. Þrifdóttirin er aðeins 16 ára gömul og verður gift með vorinu, efast um að við verðum boðin í brúðkaupið.
Nú rétt í þessu var garðyrkjumaðurinn að láta sjá sig eftir að hafa verið týndur í meira en viku. Sem betur fer gat barnfóstran túlkað öll samskiptin, annars hefði hann örugglega horfið aftur. Þá er allt starfsfólkið komið á ról, nema mig vantar einhvern til þess að hafa yfirumsjón með daglegum verkefnum, eins konar starfsmannastjóra. Einhver þarf líka að skipuleggja árshátíðina fyrir vinnufólkið. Ég var nú næstum búinn að hóta þrifmæðgunum að aflýsa árshátíðinni eftir uppsteyt þeirra. Ég ætti kannski að bjóða verkefnið út.

Upplausn hjá starfsfólkinu
Það var upplausn á heimilinu í gær. Konni hringdi í mig í miklu uppnámi (ok, smá Konna-level íkjur eru leyfilegar) með þær fréttir að mæðgurnar sem þrífa hjá okkur væru með uppsteit. Þær neituðu að vaska upp nema fá kauphækkun. Þær vildu fá hækkun úr 2000 rupies í 3000 því þetta væri svo mikil vinna. (Ok. við nenntum ekki að vaska upp alla helgina;). Með mikilli lipurð þá endaðuðu samningaviðræðurnar í 2500 rupies á mánuði og þær fá djús. Djúsinn var víst mikilvægur, Leila í númer 27 hún gefur þeim alltaf djús og þær hafa aldrei fengið djús hjá Konna. Konni brást skjótt við og hentist í Q-mart að kaupa djús ofan í dömurnar. Það er bara ekkert sjálfsagðara.
Garðyrkjumaðurinn hefur ekki látið sjá sig en vonandi kemur hann í dag. Surya ætlar að flytja heim í skúrinn okkar í 8 daga því hann missti heimilið tímabundið. Þetta er nú meira ástandið. Surya er ekki mjög ríkur maður en oft gefur hann betlurunum af sínum fáu krónum. Maður á að gefa með sér, svo ef þú ert ekki að því núna þá legg ég til að þú byrjir á því. Það er auðvelt og nánast skylda að sjá eftir þó ekki sé nema þúsundkalli á mánuði til þeirra sem eiga minna.

fimmtudagur, 17. janúar 2008
Af mönnum og músum
Hann Ramakrishna er skuggi í hópnum. Ég var að hjálpa honum í gær og var að missa vitið á músinni hanns. Hann er ekki með skroll-mús sem er pínu pirrandi þegar maður ætlar að skrolla yfir kóðann. Ég spurði hann afhverju í ósköpunum hann væri ekki með skrollmús, þetta væri svo svakalega 2007 (ja eiginlega meira 1987 en ég er svo kurteis). Hann var búinn að gefast upp á því að fá nýja frá IT deildinni, hann gafst endanlega upp þegar þeir sögðu honum að það væri ekki hægt að fá skrollmús við IBM vél. Velkomin á 21. öldina.
Þolinmæði þrautir vinnur allar
Þetta hefur hann faðir minn sagt mér nokkrum sinnum um ævina, enda veitir ekki af og þekkir hann sennilega sjálfur óþolinmæðina í dótturinni enda hefur hún það ekki langt að sækja;)
Maður þarf að hugsa um þetta góða máltæki all oft hér í Indlandi. Það er reyndar merkilegt hvað sumt hefur gengið vel en annað tekur sinn tíma. Við erum til dæmis komin með sjónvarp sem reyndist vel um helgina því á aðfaranótt laugardags vöknuðum við Konni bæði með upp og niðurgang sennilega vegna matareytrunar úr ís sem við borðuðum kvöldið áður. Lau-sun og mán voru því hálf aumingjalegir. Sem betur fer slapp Mikael betur en við en hann tók það út í fyrrinótt í staðinn.
Nú við erum komin með gas eftir vikuvinnu, garðirkjumann (sem reyndar sést aldrei og enn þá minna sést að hann geri eitthvað þegar hann er þarna), mæðgur sem þrífa fyrir okkur á hverjum degi, ekki veitir af því einhvernveginn fyllist allt af skít á stundinni (sérstaklega á niðurgangstímum).
Í veikindunum sendi ég bílstjórann út á örkina að kaupa nagla svo við gætum hengt upp myndirnar. Hann kom stoltur til baka með poka fullan af nöglum sem litu út eins og hann hefði tínt þá úti á götu því þeir voru svo riðgaðir. Þeir bognuðu um leið og ég reyndi að negla þá í vegginn (með fína blómahamrinum frá Calidris, hann hefur reynst vel).
Netið kemur vonandi um helgina, sem útlendingur þá get ég ekki fengið alminnilega nettengingu, svo ég endaði á því að taka tengingu á nafni Sudhakars sem vinnur með mér. Stórhættulegir þessir útlendingar, þeir gætu farið að tala heim ef þeir fá of góða tengingu. Annars eru auglýsingarnar hér frá netfyrirtækjunum stórkostlegar, "upplifið meiriháttar nethraða, við erum með í boði 128, 256 og 512 kb tengingu hvar sem er í Hyderabad!" Spennandi ekki satt:)
Annars var okkur boðið í bjór í fyrradag hjá pari sem býr neðar í götunni. Hún er frönsk og hann breskur. Hann er að vinna hér fyrir Budwiser. Það var mjög hressandi enda eru þau bæði mjög hress og skemmtileg.
kveðjur frá ælulandi

fimmtudagur, 10. janúar 2008
Uppáhaldsstarfið
Uppáhaldsstarfið mitt í dag er kaffistrákurinn í vinnunni. Uppi í matsal er kaffisjálfsali þar sem hægt er að fá expresso, latte ofl. Það er maður sem sér um að setja bollana undir og ýta á rétta takka. Þetta virkar svo þannig að ég stend við hliðina á honum og segi honum hvaða takka hann á að ýta á:) Æðislegt. Sjáið þið ekki fyrir ykkur að hafa einn vinnandi við kaffivélina heima í Calidris? En því miður gerir þetta kaffið ekkert betra.
Nákvæmni
Þá erum við mætt á svæðið á ný, það var hressandi að standa fyrir utan eina aðalgötuna í fyrradag og anda að sér umferðinni í allri sinni mynd. Þetta eru tveir ólíkir heimar; ísland og Indland, ein yngsta þjóð í heimi og ein elsta þjóð í heimi.
Við vorum nokkuð spennt yfir því hvað tæki á móti okkur. Myndi bíll bíða á flugvellinum? Voru rúmin komin í hús? Var allt búið að gera í húsinu sem átti að klára? Ótrúlegt en satt þá beið okkar bíll, rúmin voru komin ásamt öllum húsgögnum (nema skápum) og flest allt búið. Þetta hefur gengið eins og í lygasögu.
En ég ætlaði að tala um nákvæmni. Indverjar eru vanari ögn skírari fyrirmælum en við íslendingar. Ég sat hér á fundi með vinnufélögum mínum í gær, og við vorum að fara yfir þarfagreiningarlýsiingu frá Calidris; skjal sem á íslenskan mælikvarða (amk. Calidrískan) er mjög gott, ótrúlega nákvæmt og hrein hátíð að vinna eftir. Hún var alls ekki sátt, þetta var alls ekki skírt! Til dæmis stóð að kerfið ætti að styðja alla helstu shortkutta í windows. En það stóð ekki hvaða shortkutta og það var bara alls ekki nógu gott:) Ég fór nú að brosa og benti henni á að á okkar mælikvarða væri þetta mjög skírt, hún þyrfti bara að nota almenna skinsemi til að reikna út hvaða shortkutta hún ætti að prófa.
Konni sendi bílstjóran út á örkina í gær að kaupa sexkannt og millistykki (með þremur innstungum). Bílstjórinn kom til baka eftir 2 klst tómhentur, sexkanntur var ekki til í borginni og ekki millistykki fyrir 3 innstungur, bara fyrir 4:)
Við erum ekki komin með net heima svo það er smá bið í að það heyrist í honum Konna. Á meðan fæ ég að eiga síðuna útaf fyrir mig:) Njótið.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)