þriðjudagur, 22. janúar 2008

Upplausn hjá starfsfólkinu

Það var upplausn á heimilinu í gær. Konni hringdi í mig í miklu uppnámi (ok, smá Konna-level íkjur eru leyfilegar) með þær fréttir að mæðgurnar sem þrífa hjá okkur væru með uppsteit. Þær neituðu að vaska upp nema fá kauphækkun. Þær vildu fá hækkun úr 2000 rupies í 3000 því þetta væri svo mikil vinna. (Ok. við nenntum ekki að vaska upp alla helgina;). Með mikilli lipurð þá endaðuðu samningaviðræðurnar í 2500 rupies á mánuði og þær fá djús. Djúsinn var víst mikilvægur, Leila í númer 27 hún gefur þeim alltaf djús og þær hafa aldrei fengið djús hjá Konna. Konni brást skjótt við og hentist í Q-mart að kaupa djús ofan í dömurnar. Það er bara ekkert sjálfsagðara.

Garðyrkjumaðurinn hefur ekki látið sjá sig en vonandi kemur hann í dag. Surya ætlar að flytja heim í skúrinn okkar í 8 daga því hann missti heimilið tímabundið. Þetta er nú meira ástandið. Surya er ekki mjög ríkur maður en oft gefur hann betlurunum af sínum fáu krónum. Maður á að gefa með sér, svo ef þú ert ekki að því núna þá legg ég til að þú byrjir á því. Það er auðvelt og nánast skylda að sjá eftir þó ekki sé nema þúsundkalli á mánuði til þeirra sem eiga minna.

1 ummæli:

Helga sagði...

Það er bara samanburður hjá hreingerningafólkinu ef einhver gerir eitthvað auka verður sá næsti að gera slík thið sama. Auðvitað mikið atriði að hafa djús að drekka meðan skrubbað er og skúrað.Það vill stundum vera þannig að þeir sem hafa minnst, gefa frekar af sínu en þeir sem meira hafa, sennilega skylja þeir stöðuna betur.
Baráttukveðja, mamma.