þriðjudagur, 1. apríl 2008

Af Surya og Gúrú

Surya mætti aftur til okkar í dag. Við vorum að skipta um bílaleigu og misstum því Surya í smá tíma en hann er kominn aftur, ráðinn á nýja staðinn. Það er mikill léttir, Surya er þægilegur maður og mátulega spjallglaður. Nokkuð kátur með lífið og tilveruna og hefur gaman að því að fræðast um nýja hluti. Hann spurði í dag hvernig mamma og pabbi hefðu það "mummy, daddy ok?". Ég var að útskýra fyrir honum að þau væru að flytja frá Kanada til Íslands. Hann hafði ekki mikinn grun um hvar það var en eftir að ég útskýrði það á Surya máli þá var hann með þetta á hreinu. "First Amerika, then Kanada", það þýðir sem sagt að Kanada er aðeins lengra en Ameríka. "Third?" spurði hann svo. "Third is Greenland", "Ahhhhhh". Nú er Surya með alla norður ameríku á hreinu.

Ef ég mæti í vinnuna rétt eftir níu þá er umferðin yfirleitt stopp fyrir framan skrifstofuna. Það var nokkuð gaman í dag því fyrir framan mig í röðinni var hindúa Gúrú ásamt föruneyti. Hann ferðaðist ekki um á BMW heldur á yfirbyggðu fjórhjóli sem var ýtt áfram af fjórum mönnum og fylgt eftir af tveim öðrum. Bænamenn tveir ýttu hjólinu, í hvítu fínu dressi og á tánum. Ég get ekki ímyndað mér að það hafi verið þægilegt á aðalgötunni en það sem verra er er örugglega mengunin enda voru þeir allir með hvíta andlitsgrímu fyrir munninum. Spurning hvort þeir hlaupi þegar það losnar um umferðina. Ég væri til í að sjá það.

Engin ummæli: