Allt að gerast í Hyderabad, ekki nóg með það að eiga tennisvin, þá er ég orðinn fullgildur meðlimur í mömmuklúbbnum...gerist varla betra. Allar hvítu mömmurnar og börnin sem ekki eru á skólaaldri hittast einu sinni í viku og bera saman bækur og bleiur. Líka upplagt tækifæri fyrir börnin að leika sér á meðan ég og mömmurnar drekkum te og ræðum heitustu málin í Hyderabad, þær skiptast líka á nýjustu glanstímaritunum og ræða nýtt vöruúrval í aðalmatvörubúðinni í bænum.
Við fegðarnir skemmtu okkur vel á þessum samkomum en erum ekki eins þróaðir og hinar mömmurnar sem mæta að sjálfsögðu með barnfóstruna í eftirdragi svo þær geti drukkið sitt te í ró og næði, mín barnfóstran bíður heima og lagar mat á meðan. Mikael Tumi var alveg með það á hreinu hvað á að gera þegar hann hefur fengið nóg af mömmunum og börnum þeirra, hann einfaldega réttir pabba skóna og nær svo í sína skó og bíður við dyrnar. Þá er tími til kominn að fara heim.
Á heimleiðinni stoppuðu fegðarnir á Coffee Day sem er ekki ósvipað Kaffitár nema gæðin á kaffinu er ekkert til þess að tala um en þó betra en instant kaffi. Pantaði einn kaffi Latte í take away. Afgreiðslumaðurinn horfið lengi vel í gegnum mig og byrjaði að fletta kaffiseðlinum af indverskum ákáfa. Síðan spurði hann mig með miklum trega hvað kaffi Latte væri.....ja hérna, var ég ekki á kaffihúsi sem sérhæfir sig í kaffigerð. Eftir smá samskiptaörðugleika kom í ljós að maðurinn sem gerir kaffi Latte var í fríi í dag, en til að hughreysta mig sagði starfsmaðurinn að hann gæti gert cappuccino í staðinn. Athyglisvert að hann kunni það en ekki kaffi Latte, af reynslunni einni ákvað ég að vera ekkert að kenna honum hvernig á að laga kaffi Latte heldur leyfði sérfræðiþekkingu hans að njóta sín og fór heim með indverskan cappuccino. Vona bara að kaffi Latte maðurinn sé ekki í löngu fríi.
Konni
föstudagur, 18. apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli