þriðjudagur, 15. apríl 2008

Indverskar veislur

Okkur var boðið í tvær veislur núna á tveim dögum. Á sunnudaginn fórum við í nýjarsfögnuð hjá konu sem bjó í Whisper Valley töluvert á undan okkur en er svona alminnileg. Á sunnudaginn var nýjarsdagur í Tamil Nadu sem er fylki hér sunnan við okkur (Chenaii er t.d. í Tamil Nadu). Veislan byrjaði á Pooja (bæn) klukkan ellefu og svo átti maturinn að byrja klukkan tólf. Við mættum tólf og þá var ennþá bænahald í gangi. Hjónin sátu á veröndinn ásamt gúrú sem þuldi bæn stöðugt í hljóðnema og fyrir framan og allt í kring sat fólk og horfði á. Bæninni var svo blastað um hverfið með stórum hátölurum og við hliðina á húsinu var búið að setja upp veitingastað. Catering þjónusta er stór hér í Indlandi, Indverskar húsmæður eru ekkert að svitna í marga daga yfir smá veislu, hringja bara á menn sem sérhæfa sig í málinu.

Klukkan eitt gáfumst við upp á 37°C hitanum og fórum á næsta hótel að borða, meðvituð um að við værum pínu dónaleg en grey mikael var að lognast út af. (Það er alltaf hentugt að eiga einn grís þegar manni vantar afsökun). Ég fékk heljarinnar samviskubit í gær þegar konan kom heim til okkar, alveg miður sín yfir því að enginn hafi boðið okkur inn í svalann þar sem krakkarnir voru að leika.

Í gærkveldi átti Sakeeth sonur hans Mohans eins árs afmæli. Mér finnst eins og tvö ár síðan Mohan var á Íslandi. Ég var að vinna með honum og tveim öðrum Indverjum, þeir voru tiltölulega nýkomnir þegar ég spurði þá á mánudegi hvað þeir hefðu gert af sér yfir helgina. "I had a baby son" sagði Mohan að rifna úr stolti. Mohan var á Íslandi tvo mánuði eftir þetta og sá nýbakaða soninn ekki fyrr en eftir það.

Allavega, veislan var frábær. Indversk, litrík, hávaðasöm frábær. Fullt af fólki, við vorum kynnt fyrir allri fjölskyldunni hans og konunnar hans. Verkfræðingar, tölvunarfræðingar, vindmillusérfræðingar og ég veit ekki hvað. Furðuleg tímasetning á barnaafmæli þó en hefðbundin indversk, veislan byrjaði hálf átta um kvöldið, allir fengu mynd með afmælisbarninu, svo var kakan skorin við mikil læti, lúðra, spreningar, snjó og ég veit ekki hvað. Svo var kvöldmatur, Catering þjónusta auðvitað. Til hvers eru íslenskar húsmæður að setja allt á annan endan í þrjá daga í bakstri? Catering er lausnin, bara ef hún væri aðeins ódýrari heima. Spurning um að flytja inn Catering-Indverja.

Engin ummæli: