mánudagur, 28. apríl 2008

Sonia 25 ára


Hún Sonia varð 25 ára á föstudaginn. Hún bauð hópnum í vinnunni út að borða ásamt okkur Konna. Þau komu með köku handa henni sem er hefð hér, og var hún étin fyrir matinn sem okkur þótti all óvenjulegt. Það sem var enn óvenjulegra má sjá á myndbandinu að ofan og er víst hefð. Hún er heppin að vera stúlka, strákar eru lamdir eins mörgum höggum og árin eru.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nú ef þetta er hefðin í Indlandi, þá verður maður að finna erinhverja leið til að vera í Indlandi á afmælinu hans Konna, "When in Rome,..." Til hamingju með Soníu og vona að það sé allatf jafn gaman hjá ykkur. Síðan var ég að spá, hvað heitir hverfið sem þið búið í, mig langar að finna það á Google Earth, væri gaman að sjá þennan tennis völl sem allir eru að tala um. Guð blessi.

Konni, Ella og Mikael Tumi sagði...

Já það er ekki öll vitleysan eins. Hugsa nú að erfitt sé að sjá tennisvöllinn, en hverfið er hægt að finna á Google Earth, Whisper Valley, Jubilee Hills, Hyderabad, India.

Ella sagði...

Hvað heitir þú réttu nafni ubermixer?
Ég kann alltaf betur við að nota rétt nöfn þegar ég ávarpa fólk. Sérlega á internetunum.

Nafnlaus sagði...

Þetta er nú bara þórir aka útlendingurinn :D