miðvikudagur, 16. apríl 2008

Lífið er hrísgrjón

Hækkun á matvöru í heiminum og afleiðingar þess hefur verið mikið í fréttunum að undanförnu. Þetta kemur verst við fátækasta fólkið sem hefur ekki mikið svigrúm til þess að skera niður hjá sér þegar það hefur aðeins ráð á því allra nauðsynlegasta fyrir. Það er auðveldara fyrir okkur sem eigum meira að skera niður í mat, fatnaði og afþreygingu en þegar launin rétt duga fyrir húsnæði og hrísgrjónum þá er ekki margt í boði.

TIl þess að leggja fátæku fjölskyldunum lið er farið af stað verkefni hér í Indlandi þar sem fátækt fólk getur keypt hrísgrjón á verði sem er töluvert lægra en markaðsverðið í almennu búðunum og mörkuðum. Til þess að geta keypt þetta þarftu að fá einhverskonar vottorð um að þú lifir undir fátæktarmörkum. Auðvitað eru gloppur í þessu kerfi og menn og konur eru hrædd um að þessir couponar leki út til þeirra sem ekki endilega þurfa þeirra með. Hjálparstarf er alltaf vandmeðfarið.

Ég rakst á þessa grein á BBC í morgun: Child brides 'sold' in Afghanistan.

Ella

Engin ummæli: