föstudagur, 11. apríl 2008

Burqa

Að skilja frekar en dæma er eitt að því sem mér finnst afar mikilvægt þegar kemur að samskiptum við annað fólk og ég reyni að fylgja en að sjálfsögðu eins og með margt sem maður reynir að gera betur þá er árangurinn ekki alltaf sem skyldi Þó svo ég telji mig nú nokkuð umburðarlinda manneskju. Ég veit ekki hvort Konni sé sammála mér en makar fylgja nú alltaf öðrum reglum.

Ég hef yfirleitt gaman að því að skilja hefðir og lífsýn ólíkra þjóða og hópa. Því eitthvað sem hljómar bjánalega í fyrstu getur hljómað afskaplega rökrétt um leið og maður skilur hvað liggur að baki og kannski sögu viðkomandi persónu.
Burqa er eitt af því sem ég á erfitt með að skilja. Sérlega þegar fólk vill meina að konurnar vilji vera í þessu. Ég skil að islam leggur áherslu á að menn og konur hagi sér hófsamlega meðal almennings en það skal enginn segja mér að kona innst inni vilji vera hulin frá toppi til táar eins og hún sé eitthvað ósæmileg. Ég skil hins vegar að sennilega vilja þær þetta trúarinnar vegna og hefðar, en þetta hlýtur að vera bælandi.
Múslimakonur eru í Burqa (fyrir þá sem ekki þekkja þá er þetta svarti klæðnaðurinn (kápan) sem þær bera og jafnvel alveg þaktar svo bara sjáist í augun) þegar þær yfirgefa heimilið og ég hélt fyrst að þær væru í þessu alltaf utan heimilisins. Þær konur hins vegar sem vinna á skrifstofu fara úr henni þegar þær koma í vinnuna. Ég mætti einni í lyftunni í morgun og hún fór beinustu leið í andyrið á snyrtinguna, væntanlega til að fara úr henni enda sérðu enga konu í þessum klæðnaði hér innanhúss. Sem betur fer (ætlaði að segja Guði sér lof en það er kannski ekki viðeigandi).
Samvæmt wikipedia stendur ekkert í kóraninum um að konur eigi að vera í burqa. En eins og með biblíuna má örugglega túlka ýmislegt á þann veg sem hentar.

Ég er alveg tilbúin til að reyna að silja þetta en hef verið of löt hingað til til þess að lesa mér til. Og ég þekki enga múslimakonu. Ég þekki einn múslima, hann Nazeer sem vinnur með mér og hann er indælisnáungi.

5 ummæli:

Unknown sagði...

Sammála Ella, að það er sumt sem er verulega erfitt að skilja en ansi oft er það út af eigin fáfræði. Burka er eitt af þessu óskiljanlega.
Mikið er alltaf gaman að lesa bloggið ykkar og fróðlegt líka. Góða helgi til ykkar allra.
kv Gunna

Lína og Alex: sagði...

Hvað segja samstarfskonurnar sjálfar ? - merkilegt að þær "svifti af sér hulunni" í vinnunni...er það fyrirtækja pólisía eða er ástæðan önnur ? Væri ekki gaman að bjóða einni bláókunnugri í teríuna þarna í vinnunni og rökræða Burka venjur yfir kökusneið og saffrante ? Kram/L

Ella sagði...

Það væri einmitt snilld, veit reyndar ekki með saffranteið, það hljómar einkennilega:)
En ég væri mikið til í það ræða þetta við múslimakonu, ég bara þekki enga! Og þær þekkjast einna helst úr fjöldanum í vinnunni þegar þær koma huldar í lyftuna og fara út á fyrstu hæð. Ég gæti auðvitað reynt að leggja skóna þeirra á minnið og hafið svo leit, ef ég findi hana gæti ég reynt að kynnast henni, með þann tilgang að geta rætt þetta síðar.
Því þetta ræðir maður ekki beint í lyftunni!
"uhummm madam, why are you wearing this black thingy?"

Nafnlaus sagði...

Er ekki val/vilji afstætt hugtak? Er ekki val/vilji mótaður af því samfélagi sem við mótumst í? Ég fæ t.d. ekki skilið hvers vegna sumar konur á vesturlöndm velja að vera í vændi/klámi - að sama skapi tel ég að val múslimakvenna til að bera blæuna/búrkuna sé mótaður af því samfélagi sem þær koma úr.

En að hitanum, ekki get ég sagt að ég sakni hans ennnn mér fannst rakinn alltaf verstur...þegar maður svitnaði við það að gera ekki neitt.. Einu ráðin við þessu eru vatn, loftkæling og sunblock - muna svo eftir að bera á hálsinn MJÖG MIKILVGÆT.

Bumban vex og vex og verðandi móðirin með að því virðist..

Hafið það sem allra best
Ásta María

Ella sagði...

Gaman að heyra í þér Ásta!
Sem betur fer er loftslagið hér þurrt, annars væri maður blautur í gegn allan daginn. Ég var alvarlega að hugsa um það um daginn að fá mér bara vatn í æð og ganga með. Það er hreinlega leiðinlegt að drekka allt þetta vatn!

Bið að heilsa bumbubúanum og hafið það sem allra best:)