fimmtudagur, 3. apríl 2008

Það er heitt!!!!

Mér er heitt, heitt eins og kafna heitt. Ekki heitt eins og svitna heitt. Mig svimar af því að labba upp tröppurnar, algerlega orkulaus heitt. Heitt, heitt heitt.
Það var 34°C í dat í Hyderabad, á næsta þriðjudag er spáð 36°C og svona hækkar þetta gráðu fyrir gráðu næstu tvo mánuði þangað til monsoon rigningin skellur á okkur. Það verður svalandi. Hitinn ku fara í 45°C í apríl/maí. Ég legg til að þið heimsækjið okkur EKKI á þeim tíma, nema þið hafið áhuga á að skoða mörk líkamans. Ég var í Dubaii í haust í 45 °C, það var allt í lagi, á loftkældu hóteli, í loftkældum bíl eða loftkældri skrifstofu en hérna heima er kælingin ekki alveg nógu góð því loftræstingarnar eru bara í herbergjunum.
Bið búim samt vel, Madhura sem vinnur með mér er lítil sæt indversk kona komin rúmlega 6 mánuði á leið. Heima hjá henni er engin loftræsting. Ég sé það ekki alveg fyrir mér að vera komin átta mánuði á leið í borg þar sem hitinn er 45°C og lifa án loftræstingar.
Hitasæknin á meðgöngunni hentað mér vel á klakanum. Ég sat við gluggann í vinnunni og leið bara vel en yfirleitt er frekar kalt í Calidris á veturnar enda byggt fyrir útfararstofu, ekki forritara. Það er mér minnisstætt þegar Geir fyrrum vinnufélagi (blessuð sé Calidris-minning hans) sem er dagleg hetja sagði hingað og ekki lengra þegar hann var hættur að geta slegið á lyklaborðið fyrir kulda þegar ég var ólétt. Geir hjólaði alltaf vetlingalaus í vinnuna á veturnar til að herða húðina á höndunum.
Eina ráðið er að skella í sig eins og 2 lítrum af vatni. Á sumrin þarf maður að drekka 6-10 lítra samkvæmt innfæddum.

2 ummæli:

Unknown sagði...

Ahhh - það yljar manni að lesa þetta hér í norðangarranum á 64. gráðu.
Annars er ég farinn að hjóla með vettlinga - enginn tilgangur í að herða puttana eftir aðskilnað okkar Ellu :)

Ella sagði...

Hvað er að heyra Geir, er eitthvað að hitna undir kúlinu?