sunnudagur, 6. apríl 2008

Feðgarnir í viðtali hjá Deccan Post

Við erum rétt búin að koma okkur fyrir hér í hitanum í Hyderabad að indversku fjölmiðlarnir eru þegar farnir að keppast um sögu okkar. Málið var nú ekki merkilegra en svo að Deccan Post vildi endilega vita hvernig væri að búa í lokuðu samfélagi (gated community) með ríka fólkinu í borginni. Ekki ósvipað og að búa á Arnarnesinu nema hér er allt girt af og öryggisverðir sem sjá til þess að enginn óæskilegur komist inn eða út. Hér er líka miklu heitara og fullt af moskítóflugum....jæja þetta er ekkert eins og Arnarnesið nema húsin og ríka fólkið.
En við fegðarnir vorum meira en til í að segja sögu okkar....linkarnir hér fyrir neðan eru tvær blaðsíður úr Deccan Post um hverfið okkar, meira að segja mynd af fegðunum á seinni síðunni. Indversk blaðamennska er greinilega frjálsleg þegar kemur að því að hafa eftir viðmælendum, blaðamaðurinn einfaldlega skáldaði upp í eyðurnar á ummælum sem hún annað hvort skildi ekki eða mundi ekki seinna meir. Eru það ekki ágætis meðmæli fyrir vinnu á DV? En hvað um það, feðgarnir eru komnir á blað.

http://70.87.69.50/deccanpost/issue07/downloads/21_03_2008_020.pdf
http://70.87.69.50/deccanpost/issue07/downloads/21_03_2008_021.pdf

Konni

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ afgirta fjölskylda. Þetta var nú aldeilis áhugavert og sæt mynd af ykkur feðgum. Vonandi komist þið samt bráðum í tennis, þetta gengur ekki svona til lengdar. Gott samt að gengur vel hjá Mikael með kærustuna.
Bestu kveðjur í hitann, heyrumst fljótt á skype-inu.
Vala

Nafnlaus sagði...

"Breaking the ice" :)

Annars er borg óttans alltaf að versna spurning hvort svona afgirt svæði verði opnað hér á næstu árum?

Hilsen,

Konni, Ella og Mikael Tumi sagði...

Viti menn, eftir útgáfu blaðsins hófust framkvæmdir á fullu við að endurbæta tennisvöllinn og var hann opnaður nýverið með glæsilegri vígsluathöfn.