Sökum almennra væntumhyggju, óþrjótandi góðmennsku, hátíðaranda og ítrekaðra óska höfum við Hyderabaddarnir ákveðið að setja á sölu 20 gráðu hitastig kennt við mr. celsíus, farenhætin sívinsælu því miður uppseld. Um er ræða fínt og stöðugt hitastig sem passar við allar gerðir veðurfars. Hentar vel til að bæta upp skítaveður eða til þess að upplifa annars konar óveður ( á þá aðeins við ef alla vega 20 gráður eru fyrir í andrúmsloftinu). Virkar líka á veðravíti.
Áhugasamir kaupendur frá Íslandi fá sérkjör í dag á sumardeginum fyrsta, hvernig væri nú að koma frúnni á óvart með auka 20 gráðum á sumardeginum fyrsta og skella sér í sólbað í speedo-skýlunni. Gætuð jafnvel selt sumarferðir í garðinn ykkar eða á svalirnar til að fjármagna kaupin.
Athugið við tökum ekki við íslenskum gjaldmiðli, gerir það einhver ennþá? Helst væri gott að fá borgað í yenum, rupees eða bara hrísgrjónum. Takmarkað upplag og ekki hægt að skila ef það er skýjað. Sendum samdægurs með bílstjóranum okkar út um allt land.
Einnig til sölu íslenskur 1000kall sem óvart flæktist með, lítið notaður og þá aðallega sem munnþurrka - aðeins eitt eintak. Fæst fyrir klínk eða handfylli af hrísgrjónum.
Baráttukveðjur á þessum merka fyrsta sumardegi.
Hyderabaddarnir
fimmtudagur, 24. apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Ég er reiðubúinn til að skipta á 5° C héðan af klakanum og 20 hyderabadgráðum í staðinn. Get jafnvel lagt til nokkrar rúpíur. Annars allt cool héðan af klakanum. Heyrði af offramboði þjónustufólks hjá ykkur - væruð þið til í að senda einn bílstjóra hingað - enda indversk umferðamenning one of India´s finest!
Kær kveðja, Atli Már
Jamm - gleðilegt sumar elsku vinir. Sumardagurinn fyrsti stendur undir nafni því það skall á með sumri í dag. Í gær var 10 stiga hiti og norðangarri, s.s. vetur en í dag er 10 stiga hiti og sunnan-rigning, s.s sumar :)
Ég held að markaðsverð á hita fari hríðlækkandi nú þegar jörðin er öll að hitna svo þið skuluð selja þetta sem fyrst og vera tilbúin að veita afslátt. Ég gæti keypt af ykkur svona 1 til 2 gráður en það væri þá bara vinagreiði.
Það er ekki hægt að selja hitagráður. Hvernig dettur þér í hug að reyna selja hitagráður. Ætlarðu að setja það í flösku. Þú getur ekki notað pláss á netinu til að skrifa eitthvað rugl. Ég er alveg viss um að þegar Al Gore fann upp á netinu þá hafi hann ekki ætlast til að fólk noti þaðtil að skrifa hluti sem eru ekki hægt. I'm shocked. Og á meðan eru börn að deyja úr hita í suður Frakklandi, heldurðu að þau vildu ekki selja hitagráður þeirra. Þú ert að gefa þeim falska von. Skömm á þig Konni...
Ekki vera sár Ubermixer yfir því að hafa ekki efni á nokkrum hitagráðum, ég skal senda þér sýnishorn.
Al Gore fann ekki upp á netinu. Hann er pólitíkus sem ferðast um allan heiminn á einkaþotu og mengar andrúmsloftið meira en margir meðalmenn gera allan sína ævi. Flytjandi boðskap með vafasömum rökum, sum þeirra óvísindalegar staðhæfingar.
Bendi ég á heimildarmyndina The Great Global Warming Swindle því til stuðnings sem hægt er að sjá á www.youtube.com
Skrifa ummæli