Til að átta sig á þessu veðurfari og okkar svitastuðul þá eru hér smá leiðbeiningar fyrir þá sem búa á lítilli eyju í miðju Atlandshafinu. Fyrst skaltu hækka alla ofan í húsinu í botn, stilla bakaraofninn á 200 gráður og hafa hann opinn, loka öllu gluggum. Klæddu þig í flest öll föt sem þú átt inni í skáp, fyrir utan stuttbuxur. Taktu svo til við léttar leikfimisæfingar í stofunni í fullum klæðum, eftir sirka hálftíma er gott færa sig inn í eldhús og taka ærlegt bootcamp prógramm við bakaraofninn. Eftir sirka tvo tíma af herlegheitunum ætti þú að upplifa álíka svitakast og viðgengst venjulega á okkar slóðum.
Úffi púffi púff. Fyndið að hugsa til þess að í næsta mánuði fer ég með hópi fólks í indjánatjald í breiðholti og borga 5000 kr fyrir að svitna ærlega, þegar þið svitnið alveg ókeypis þarna suðausturfrá ...
Kossar og knús fyrir flottu afmælisgjafirnar Ella : )
6 ummæli:
þannig að það verður bara kalt um helgina... Á að fara á skíði?
Til að átta sig á þessu veðurfari og okkar svitastuðul þá eru hér smá leiðbeiningar fyrir þá sem búa á lítilli eyju í miðju Atlandshafinu.
Fyrst skaltu hækka alla ofan í húsinu í botn, stilla bakaraofninn á 200 gráður og hafa hann opinn, loka öllu gluggum. Klæddu þig í flest öll föt sem þú átt inni í skáp, fyrir utan stuttbuxur. Taktu svo til við léttar leikfimisæfingar í stofunni í fullum klæðum, eftir sirka hálftíma er gott færa sig inn í eldhús og taka ærlegt bootcamp prógramm við bakaraofninn. Eftir sirka tvo tíma af herlegheitunum ætti þú að upplifa álíka svitakast og viðgengst venjulega á okkar slóðum.
Ojjj...Djöfull er ég fegin að vera ekki indverji!!
Muna að drekka vel krakkar! Annars fáið þið illt í nýrun.
Kv. Brynja Þorgeirs
Úffi púffi púff. Fyndið að hugsa til þess að í næsta mánuði fer ég með hópi fólks í indjánatjald í breiðholti og borga 5000 kr fyrir að svitna ærlega, þegar þið svitnið alveg ókeypis þarna suðausturfrá ...
Kossar og knús fyrir flottu afmælisgjafirnar Ella : )
Kveðja, Vala og co.
Það fer bara hrollur um mann !
Skrifa ummæli