Það er hiti þessa dagana, ekki bara úti heldur í tennislífinu í Whisper Valley. Það voru settar reglur í upphafi um að tenniskennsla sé í gangi á morgnanna svo og milli hálf fimm og hálf sjö. Eftir hálfsjö meiga aðrir nýta völlinn. Eftir tveggja vikna kennslu var okkur tjáð að það væri tennisæfingar einnig til hálf átta. Svo tíminn fór að verða knappur. Þetta var lítið mál þar sem upphaflega voru það bara ég, Konni og Atul en nú hafa Leila og Rob ásamt þremur öðrum bæst í hópinn svo það var orðið annsi þröngt á vellinum. Leila greip upp samninginn og tjáði þjálfaranum að það væri brot a reglunum að vera með kennslu til hálf átta og hana nú.
Daginn eftir komu auðvitað bara nýjar reglur. Mamma eins stráksins sem æfir tennis nefnilega stjórnar reglunum svo auðvitað voru þeim bara breytt. Auk þess verðum við núna að borga fyrir lýsiinguna, en við meigum bara spila eftir myrkur og erum því eina fólkið sem verður að borga. Best að kríja smá pening út úr útlendingunum. Þetta allt saman væri kannsi allt í lagi, en ég á erfitt með að skilja var 10.000 ISK fara mánaðarlega í maintainance ef þeir hafa ekki efni á að borga lýsinguna. Leila er að berjast í málinu.
Rétt eins og hitaveitan kostar sitt á veturnar heima þá getur orðið dýrt að keyra allar fjórar loftræstingarnar. Rafmagnsreikningurinn var um 10.000 ISK fyrir síðasta mánuð! Svo nú er að svitna eða láta budduna blæða.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli