miðvikudagur, 21. maí 2008

Heitar löggufréttir

Skrapp á bæjarskrifstofuna að borga rafmagnsreikningin, ekki nema sirka 50 manns á undan mér, að sjálfsögðu var maður í vinnu við að kalla upp næsta númer. Í einfeldni minni spurði ég næsta starfsmann hvort það væri ekki hægt að borga reikningin á netinu.....hann hélt ég væri að grínast, hló að mér og fór.

Það eru fleiri en hvítir útlendingar að stikna úr hita í Hyderabad. Lögreglan í fylkinu (AP) heldur inntökupróf um þessar mundir, allir karlmenn þurfa að hlaupa 5 km. og konurnar 3 km. á tilteknum tíma til þess að uppfylla inntökuskilyrði. Að labba í 40 stiga hita er erfitt hvað þá að hlaupa 5 km. Enda hefur komið á daginn að alla vega fjórir einstaklingar létust við þessa þrekraun á tveimur dögum og 20-30 þurftu að fara á spítala. Löggan var ekki á þeim buxunum að fresta þessum hlaupum heldur reddaði sjúkrabíl við upphaf og endamark hlaupsins. Ekki breytti það miklu, fleiri tilvonandi löggur hafa drepist úr hita og ofþornun þrátt fyrir sjúkrabílinn góða.
Fleiri löggufréttir, spilling er landlæg í stjónkerfinu á Indlandi, launin eru svo léleg að margir reyna að drýgja tekjurnar með vafasömum hætti. Ein lögga í bænum komst í fréttirnar á dögunum, umrædd lögga var að ná sér í auka pening með því að fjárkúga búðareigendur - mútur fyrir vernd. Einn búðareigandinn var ekki parhrifinn af þessum spillingarleikjum löggunnar og hringdi í lögguna - nánar tiltekið Anti Corruption Police Force sem útleggst einhvern veginn sem Andspillingarsveit löggunnar. Sveitin heiðarlega tók sig til og sat um spilltu lögguna sem fór grunlaus sinn vanagang að innheimta persónuafsláttinn til búðareigandans. Andspillingarsveitin stökk til þegar spillta löggan tók við illa fegnu fénu - í örvæntingu sinni ákvað löggan að best væri að gleypa peningin til að eyða öllum sönnunargögnum og flýja í næsta strætó. En strætóinn var ekki beint á hraðferð í umferðaröngþveiti. And-sveitin átti því ekki í miklum erfiðleikum með að góma spilltu lögguna á næstu stoppistöð og peningurinn sem hann gleypti aðeins 4000 rúpíur eða tæplega 8000 íslenskar. Hann hafði þó alla vega vit á því að vera ekki að hlaupa neitt í þessum hita....tók bara strætó.

Konni

2 ummæli:

Unknown sagði...

Æsispennandi og óborganlegar fréttir frá Hyderabad! :D

Unknown sagði...

Það verður ofsalega gaman að fá ykkur heim en mikið á ég eftir að sakna indlandsbloggsins - þið eruð snillingar! Ættuð að gefa út bók!