Það voru kosningar í Indlandi í gær, eitthvað svipað og bæjarstjórnarkosningarnar heima, annars getur verðandi stjórnmálafræðingur útskýrt þetta betur. Margar búðir voru lokaðar, og sum IT fyrirtækin voru lokuð til að hvetja fólk til þess að kjósa. Til þess að kjósa þarftu vegabréf og sérstakt kostninga skilríki, eins og vegabréfið sé ekki nóg. Margir hafa ekki sótt þetta skilríki og geta því ekki kosið.
Surya fór og kaus í gær, og kom málaður á puttanum til baka. Þegar þú ert búinn að kjósa þá ertu ss. málaður svo þú getir ekki komið aftur og kosið. Þetta er svipuð aðferð og var notuð í sveitinni til að muna hvaða rollur var búið að sprauta, þá voru þær spreyjaðar.
Þetta er gósentíð hjá götufólkinu, flokkarnir bjóða upp á föt, dýrindis máltíðir og fleira í skiptum fyrir atkvæðið og kannski eðlilega þá er atkvæði þessa fólks alveg til sölu fyrir smá aur. Gangverðið á atkvæði í dag eru 2000 rupies eða um 4000 ISK.
Annars er morgunspjall okkar Surya alltaf jafn skemmtilegt:
"Your country, good home?"
"Yes, Iceland good home, peacful"
"Big house?"
"No, no house in Iceland"
"Aoohhh"
"House more expensive in Iceland"
"Aoohhh"
Svo snýr að öðru, spjalli um flyover sem er verið að byggja í miðborginni, sem er eiginlega hreint umhverfisslys og er búið að vera í byggingu síða við komum til Hyderabad...
Ella: "This flyover, nothing happening!" -eins og þið heyrið þá hef ég þróað sérstaka Suryisku
"Yes! hohoho happening no!"
"many many months, happning no!"
Hús eiga það til að vera í byggingu í marga mánuði, stundum virðast framkvæmdir stoppa og ekkert gerist í marga mánuði nema að grunnurinn fyllist af heimilislausu fólki.
"This house, nothing happening?"
"No, this house, court, you no court inside"
"Aha this house, problem?"
"Yes, this house, court inside, problem, building no"
Góðan vinnudag öllsömul
Ella
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli