mánudagur, 26. maí 2008

Leigubílaflotinn í Mumbai


Þessi stenst varla skoðun....þarf sennilega ekki að hafa miklar áhyggjur af því úr þessu.


Kannski kominn tími til að hressa aðeins upp á útlitið á þessum Fiat! Vandasamt verk.



Afi gamli var ekki vandræðum með sinn Fiat-kagga og skellti kerrunni okkar upp á toppinn og batt einn spotta á milli.

Konni

3 ummæli:

Torfi sagði...

Ég átti einu sinni svona Fíat, Fiat 110, og hann var frábær. Mér sýnist þessi Indverski vera eitthvað slakari.

Ella sagði...

Ég man eftir honum!
Sérlega eftir því að vera send út að ýta þegar hann fór ekki í gang í kuldanum:) Mig minnir líka að ég hafi skellt hurðinni á honum á fingurna hennar mömmu í einni Odda-rukkunarferðinni:) Það var annað hvort þessi eða ladan sport.
Góðar minningar:)

Lína og Alex: sagði...

Mér sýnist vera eitthvað "konunglegt" merki á hurðinni á þessum taxa og svona gul kóróna. Bara lúxus þarna er það ekki? Skemmtileg mynd af ykkur :)